Skoðun

Kyndlar næstu kynslóðar

Jón Þór Ólafsson skrifar

Það er stór dagur í dag, bæði fyrir Pírata sem hreyfingu og mig persónulega.

Í dag opnar fyrir skráningu í prófkjör Pírata fyrir komandi þingkosningar. Þátttaka í prófkjörinu er kjörið tækifæri fyrir þau sem brenna fyrir auknu frelsi einstaklingsins, því að valdhafar sæti ábyrgð og að almenningur hafi beinni aðkomu að stjórn landsins að láta til sín taka. Ég hvet þau ykkar sem deilið þessari hugsjón okkar Pírata að skrá ykkur til leiks á https://piratar.is/xp/frettir/kosningar/

Ég hvet ykkur því öll sem setjið grunnstefnu Pírata í forgang að bjóða ykkur fram og mun ég aðstoða ykkur af hliðarlínunni. Markmið mitt var alltaf tryggja sjálfbærni Pírata, og í dag er hreyfingin sterkari en nokkru sinni fyrr. Það er mikill meðbyr með flokknum, grasrótin er öflug, starfsfólkið okkar er afburðahæft, þingflokkurinn hefur aldrei verið samheldnari og þau sem bjóða sig fram aftur kunna til verka. Píratar eru því svo sannarlega sjálfbærir og þar sem ég er ekki lengur nauðsynlegur í framlínuna mun ég aftur leita í friðinn utan þingsins í stað þess að leita endurkjörs. Fyrir þau sem stefna á framboð segi ég að þingstarfið er það skemmtilegasta sem ég hef gert.

Mitt hlutverk fyrir Pírata færist í grasrótina við að styðja frambjóðendur meðfram þingstörfunum fram að kosningum og styðja svo nýja þingmenn sem taka sæti fyrir flokkinn eftir kosningar. Eins og nýleg rannsókn Stefaníu Óskarsdóttur og Ómars H. Kristmundssonar sýnir eru þingmenn yfirleitt lengi að læra á starfið, sem er einfaldlega sóun. Sóun á tíma, peningum og starfskröftum. Og umfram allt sóun á tækifærum til að vinna að framgöngu stefnumála Pírata.

Það er bara eitt sem ég vill að lokum biðja ykkur um af öllu hjarta. Hlustið eins og ég hef alla þingsetuna hlustað á Peter Drucker, faðir nútímastjórnunar, sem benti á þrjú atriði sem félög verða að tryggja til að vera sjálfbær: Að skila árangri, standa við gildin sín og velja hæfa arftaka. Til að Píratar séu áfram sjálfbærir eru þrjú lykilatriði að horfa til við val á frambjóðendum svo þeir geta unnið sem best að framgöngu stefnumála Pírata á Alþingi:

1. Að setja grunnstefnu Pírata í forgang - Flokkar sem fórna grunnstefnunni sinni tapa réttilega ástríðufyllsta fólkinu og kjósendum annað.

2. Að geta náð árangri í þingstarfinu - Árangur í þingstarfinu er grundvöllur þess að stuðla að framgöngu stefnumála flokksins.

3. Að vera nógu ákjósanleg til að ná kjöri - Þetta er stundum kallað kjörþokki, en án þessa þáttar munu færri frambjóðendur ná kjöri til að vinna að grunnstefnunni okkar.

Píratar eru kyndilberar borgararéttinda og lýðræðisumbóta á 21 öldinni. Þegar ég fattaði það þá tók ég upp kyndilinn. Ef þú brennur líka fyrir valfrelsi einstaklingsins og velferð allra, bjóddu þig þá fram og gerðu þetta að veruleika með okkur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×