Skoðun

Gjöfult sprotaumhverfi á frumkvöðlasetrum

Karl Friðriksson og Sigríður Ingvarsdóttir skrifa

Með fyrirhugaðri lokun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands lýkur ákveðnum kafla í sögu frumkvöðlasetra á Íslandi. Reynslan hefur sýnt að faglegur stuðningur á fyrstu stigum reksturs sprotafyrirtækja skiptir sköpum. Fyrir þó nokkru var ákveðið, að gera úttekt á umfangi og árangri frumkvöðlasetra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Ákveðið var að ljúka þessu verkefni núna, ekki síst vegna þeirra vatnaskila sem nú eiga sér stað gagnvart þjónustu við frumkvöðla hér á landi. Niðurstaða verkefnisins er nýlegt rit þar sem skoður árangur frumkvöðlasetrana sem fyrirrennari Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Iðntæknistofnun Íslands, setti af stað árið 1999. Höfundur ritsins dr. Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor hjá Háskóla Íslands, vann það verkefni út frá tilgreindum rannsóknarspurningum sem hann setti fram.

Runólfur Smári rekur sögu setranna, skoðar nokkrar lykiltölur, og aðrar kannanir sem gerðar hafa verið og dregur saman niðurstöður úr viðtölum, annars vegar við starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og svo nokkra fulltrúa úr flóru þeirra fyrirtækja sem hófu rekstur eða fengu þjónustu setranna í upphafi starfsemi sinnar. Ritið er aðgengilegt án endurgalds á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands www.nmi.is

Leiðarljós við stofnun og rekstur frumkvöðlasetranna hefur alltaf verið að efla frumkvöðla- og sprotaumhverfi og þar með nýsköpun hér á landi. Að mati stjórnenda miðstöðvarinnar hafa framangreind atriði verið lykilframlag í að byggja upp samkeppnishæft atvinnulíf.

Þau skipta hundruðum fyrirtækin sem hafa nýtt aðstöðu á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í gegnum tíðina. Frumkvöðlarnir hafa komið þar inn, stofnað fyrirtæki sem hafa stundað rannsóknir og þróun, stefnt að háleitum markmiðum, vaxið, dafnað og haft áhrif á samfélagið hér með ýmsum hætti. Fyrirtækin sem hafa stigið sín fyrstu skref á frumkvöðlasetrunum eru fjölbreytt en eiga það öll sameiginlegt að byggja á hugviti og stunda nýsköpun. Þegar litið er í baksýnisspegilinn og rýnt í tölfræði og árangur þeirra fyrirtækja sem hafa verið á setrunum og útskrifast þaðan má glöggt sjá að þarna er um gríðarlega mikilvægan ávinning að ræða sem hefur áhrif á hagtölur landsins.

Það er staðreynd að þau verðmætu fyrirtæki sem byggja á hugviti geta verið staðsett hvar sem er í heiminum og frumkvöðlar velja fyrirtækjum sínum stað þar sem umhverfið er hagfellt með tilliti til opinbers stuðnings og aðgangs að mannauði, góðu og stöðugu rekstrarumhverfi og góðri aðstöðu. Faglegur og fjárhagslegur stuðningur auk aðstoðar á fyrstu stigunum í fyrirtækjarekstri og þróun viðskiptahugmynda er lykilatriði.

Hver svo sem málalok verða með Nýsköpunarmiðstöð Íslands þá þarf áfram að hlúa vel að frumkvöðlum, skapa þeim gott vinnuumhverfi og auðveldan aðgang að upplýsingum og faglegri aðstoð. Það er þjóðarhagur að bjóða frumkvöðlum og fyrirtækjum umhverfi sem er fullkomlega samkeppnishæft við það sem best gerist annars staðar í heiminum. Íslensk yfirvöld geta ekki treyst á að það gerist af sjálfu sér í framtíðinni frekar en hingað til.

Karl Friðriksson er deildarstjóri og Sigríður Ingvarsdóttir er forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×