Skoðun

Kerfi um kerfi frá kerfi til kerfis. En ekki til barna

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar

Nýverið var greint frá því að um 2000 börn um allt land eru á biðlista eftir þjónustu hjá talmeinafræðingi. Við sem höfum starfað innan skólakerfisins þekkjum þessar biðlistasögur foreldra. Sögur sem lýsa óendanlega langri og einhvern veginn vonlausri bið eftir að röðin komi að þeirra barni.

Bið sem er löng. Allt of löng

Á meðan beðið er horfa foreldrar upp á barnið sitt halda áfram að strögla, dragast aftur úr vegna þess að það fær ekki nauðsynlegan stuðning til að þroska málvitundina, tal eða framburð. Að geta tjáð sig og skilið tungumálið sitt er dýrmætur lykill. Lykill barns til að taka þátt í samskiptum, gera sig skiljanlegt, auka leikni og færni í námi og skilja umhverfið sitt betur í dag en í gær.

Biðin þykir ósanngjörn en allir sýna þolinmæði og tala sig inn á að þakka fyrir að fá yfirleitt þjónustu. Allir eru að gera sitt besta. Kennarinn er að gera sitt besta, foreldrar eru að gera sitt besta og barnið er að gera sitt besta með sína talerfiðleika, málþroskaröskun eða hvað annað sem amar að og þarfnast stuðnings við. Allt í þeirri góðu trú að það geti einfaldlega enginn gert betur en að bíða, því vesalings kerfið er að gera sitt allra besta en hefur bara því miður ekki undan.

Ógnin við kerfið

Í þessum sömu fréttum kemur síðan í ljós að talmeinafræðingar eru á sama tíma að reyna að fá aumingjans kerfið til þess að skilja stöðuna og treysta þeim sem sérfræðingum fyrir því að sinna þessari dýrmætu þjónustu án þess að ríkið stýri för og ráðski með starfsvettvang þeirra.

Innan kerfisins er talmeinafræðingnum ekki treystandi fyrir starfinu sínu, öðruvísi en undir svokölluðum verndarvæng þess. Verndarvæng kerfis sem óar við öllu sem lítur að sjálfstæði sérfræðinga sem kunna sitt fag. Sérfræðinga sem brenna fyrir það eitt að hjálpa börnum og nýta þekkingu sína til að styðja við og koma fleirum á beinu brautina en hið heilaga kerfi treystir sér til.

Kerfið eyðir tíma og orku í að verja sjálft sig og sitt lamaða umhverfi, gegn ógninni af talmeinafræðingum sem voga sér að velja frelsið til að starfa sjálfstætt af nákvæmlega sömu fagmennskunni, í stað þess að standa með frekari fjárfestingu í þágu velsældar barna.

Afturhaldið er algjört og farið að skaða út frá sér með þeim hætti að málþroski þúsunda barna er í húfi. Allt í þágu kerfisins. Kerfisins vegna.

Á sama tíma fer fram þrotlaus vinna kennara og foreldra við að halda í horfið svo barnið hljóti ekki varanlegan skaða af. Þrotlaus vinna foreldra sem trúa því af hjartans einlægni að aumingjans kerfið geti bara ekki gert betur. En leyfa sér að blóta því í laumi um leið og þeir eiga vera þakklátir fyrir biðlistann.

Höfundur er bæjarfulltrú Viðreisnar í Garðabæ




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×