Skoðun

Árás á kyn­frelsi og heilsu kvenna

Marta Goðadóttir skrifar

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn limlestingum á kynfærum kvenna. Yfir 200 milljónir núlifandi kvenna og stúlkna hafa verið limlestar á kynfærum sínum, langflestar fyrir 15 ára aldur.

Þetta er ein grófasta birtingarmynd ofbeldis gegn stúlkum og konum en aðgerðin er árás á líkama þeirra, kynfrelsi og heilsu. Þær missa vald og yfirráð yfir eigin líkama og ofbeldið, eðli málsins samkvæmt, veldur þeim varanlegum sálrænum og líkamlegum skaða. Algengir líkamlegir fylgikvillar eru þvaglátsörðugleikar, sýkingar, sársauki við samfarir, erfiðleikar við barnsburð og aukin hætta á ungbarnadauða. Þá er einnig algengt að stúlkum blæði út og deyi. Afleiðingarnar eru hrikalegar og marka líf þeirra sem fyrir þeim verða til frambúðar.

Á þessu ári er áætlað að yfir fjórar milljónir kvenna og stúlkna muni bætast í hóp þeirra sem eiga í hættu á að vera limlestar á kynfærum sínum. En vegna COVID-19 mun sú tala því miður hækka. Reiknað er með að yfir 200 þúsund stúlkur til viðbótar, á hverju ári, verði þolendur þessarar birtingarmyndar ofbeldis næstu tíu árin, eingöngu vegna COVID-19.

Í fátækum samfélögum þar sem skortur er á menntun hefur almenningur ekki forsendur til að taka upplýsta afstöðu gegn viðteknum venjum og rótgrónum hefðum og talið er að limlestingin sé stúlkunum fyrir bestu. UN Women vinnur að upprætingu þessa skaðlega siðar í samstarfi við grasrótarhreyfingar, félagasamtök, aðgerðarsinna og stjórnvöld ríkja þar sem hann er útbreiddur. Lykillinn að árangri felst í aukinni menntun og að fræða almenning um hætturnar sem fylgja limlestingum á kynfærum kvenna og þrýsta á lagasetningar sem koma í veg fyrir að fleiri konur og stúlkur verði beittar þessu grófa mannréttindabroti.

Við hjá UN Women á Íslandi ásamt öllum helstu félagasamtökum hér á landi sem starfa í alþjóðlegri þróunarsamvinnu stöndum að fræðsluátakinu Þróunarsamvinna ber ávöxt, í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Í ár beinum við sjónum að áhrifum COVID-19 á efnaminni ríki með fræðsluþættinum Stóra myndin: COVID og heimsbyggðin sem verður sýndur á RÚV 11.febrúar. Í þættinum verður m.a. kafað dýpra á hvaða hátt heimsfaraldurinn ógnar lífi og heilsu kvenna og stúlkna á sértækan hátt. Ég hvet þig til að horfa á þennan áhugaverða þátt sem varðar okkur öll.

Höfundur er kynningarstýra UN Women á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×