Skoðun

Fjölgum tækifærissinnum

Indriði Stefánsson skrifar

Við mannfólkið búum yfir ýmsum eiginleikum. Einn þeirra er að sjá og nýta okkur möguleika. Við byggjum afkomu okkar í dag á þeim tækifærum sem voru nýtt í fortíðinni. Sum til góðs önnur ekki. Sum tækifæri eru samt þannig að þegar þau eru gripin skapast ný, sem oft nýtast öðrum. Á sama hátt geta ónýtt tækifæri leitt til stöðnunar. Tækifæri geta verið ýmis konar, til framþróunar, til endurnýtingar, til menntunar, til að vinna gegn hlýnun jarðar og svo má lengi telja.

Stjórnmál snúast um möguleika

Áður fyrr þurftu stjórnmálamenn að leysa mörg mál sjálfir og kjósendur beinlínis ætluðust til þess. En hvernig væri að við treystum á stærri hóp? Treysta frumkvöðlum, treysta kjósendum, treysta okkur öllum. Frumkvöðlar geta breytt heiminum, hafi þeir möguleika til þess, þær breytingar sem fjórða iðnbyltingin hefur leitt af sér hafa verið knúnar af tækifærum, þær breytingar hafa leitt til fleiri tækifæra. Stjórnmálamenn ættu að einbeita sér að því að skapa okkur þessa möguleika.

Sköpum tækifæri

Í dag höfum við aðgang að tækni sem okkur þykir sjálfsögð en væri töfrum líkast þó ekki væri farið nema nokkra áratugi aftur í tímann. Þrátt fyrir þetta þurfum við nú sem aldrei fyrr tækifæri, við þurfum tækifæri til nýrrar tækni, til sjálfbærni, til endurnýtingar, til valkosta án mengunar. Ef við nýtum ekki þessi tækifæri, förum við á mis við möguleika framtíðarinnar. Auðlindir Jarðar eru ekki óþrjótandi og því fyrr sem við náum að grípa inn í hlýnun Jarðar þeim mun betri lífsgæði munu bjóðast og þeim mun fleiri tækifæri mun okkur bjóðast í framtíðinni.

Krefjumst breytinga

Í haust gefst okkur möguleiki á að velja upp á nýtt á Alþingi. Mér þykir líklegt að á næstu mánuðum finni stjórnmálamenn ýmis konar lausnir á alls konar vandamálum og verði til þjónustu reiðubúnir að leysa þau, fyrir eins og eitt atkvæði. Mig langar að stinga upp á að við treystum á hvort annað og okkur sjálf að við krefjumst breytinga að stjórnmálamenn skapi okkur Þessi tækifæri sem við þurfum svo nauðsynlega á að halda.

Kjósum breytingar

Við getum fundið þessar lausnir sem við þurfum fáum við möguleika til þess. En þeim mun fleiri tækifæri sem glatast þeim mun erfiðari verða vandamálin og tíminn vinnur ekki með okkur. Kjósum breytingar og kjósum fólk sem er reiðubúið að skapa þessi tækifæri. Tækifæri til að skapa þá bestu mögulegu framtíð sem okkur býðst. Annars er hætt við að eftir fjögur ár munum við óska þess að hafa byrjað núna.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×