Skoðun

Hver lifir á strípuðum bótum?

Harpa Sævarsdóttir skrifar

Nú standa yfir kosningar til stjórnar verkalýðsfélagsins VR. Félagsmenn geta kosið í gegnum vef VR á vefslóðinni www.vr.is. Mikilvægt er að allir félagsmenn nýti sinn kosningarétt því hvert einasta atkvæði skiptir máli.

Þær kosningar sem nú standa yfir eru haldnar á ófyrirsjáanlegum og fordæmalausum tímum og við okkur blasir eitt mesta atvinnuleysi sem sést hefur hér á landi frá upphafi. Þúsundir karla og kvenna hafa misst atvinnu sína og lífsviðurværi í kjölfar þeirra þrenginga sem COVID-19 heimsfaraldurinn hefur skapað heimsbyggðinni.

Sú atvinnugrein sem verst hefur orðið úti af völdum veirunnar skæðu er ferðaþjónustan. Einmitt sú atvinnugrein sem telja má að hafi bjargað okkur Íslendingum út úr kreppunni eftir hrunið 2008.

Í því samhengi má nefna að ein af fjölmörgum undirgreinum ferðaþjónustunnar, bílaleigur einar og sér, voru að velta álíka fjármunum inn í þjóðarbúið og allur samanlagður landbúnaður sem stundaður er á Íslandi (samkvæmt grein sem birtist árið 2018 á vefmiðlinum Kjarnanum). Svo mikilvæg hefur ferðaþjónustan verið þjóðarbúi Íslendinga og má þar þakka starfsfólki Icelandair sérstaklega fyrir þá öflugu markaðssetningu og kynningu á Íslandi sem ferðamannaparadís.

Þrátt fyrir fögur fyrirheit ríkisstjórnar Íslands um stuðning við þann fjölda fólks sem misst hefur atvinnu sína og lífsviðurværi undanfarna 12 mánuði frá upphafi þessa heimsfaraldurs, þá bólar lítið sem ekkert á stuðningi við þá starfsmenn. Fyrirtækin í landinu hafa sum hver fengið styrki og lán, en hvað með styrki og lán til hins almenna launamanns sem stendur eftir atvinnulaus? Jú, það eru vissulega atvinnuleysisbætur í boði í takmarkaðan tíma, en hver lifir á strípuðum bótum þegar reka þarf heimili, bíl, fjölskyldu og greiða reikninga um hver mánaðarmót?

Eitt af því sem stjórn VR hefur beitt sér fyrir, er að stuðningslán til heimilanna verði að veruleika. Stjórn VR kynnti þessar hugmyndir fyrir Alþýðusambandi Íslands og í kjölfarið hefur sú hugmynd verið tekin upp sem hluti af stefnu ASÍ.

Á tímum sem þessum er bráðnauðsynlegt að hafa öflugt verkalýðsfélag, sem VR er, til þess að gæta hagsmuna launafólks í landinu sem og þeirra sem hafa þurft að taka á sig skert starfshlutfall, hlutabótaleið eða uppsögn. Rétt skal að öllu staðið í þeim efnum. Til þess þarf sterka og samheldna stjórn sem vinnur sem ein heild fyrir hagsmunum félagsmanna.

Nái ég kjöri til áframhaldandi setu í stjórn VR, mun þetta mál verða mitt helsta baráttumál á kjörtímabilinu, enda má segja að um sé að ræða stærsta hagsmunamál launafólks á Íslandi um þessar mundir.

Höfundur er varaformaður VR og í framboði til stjórnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×