Skoðun

Og fjallið það öskrar

HIldur Þórisdóttir skrifar

Þeir sem hafa gengið í gegnum sáran missi vita að blæbrigði lífsins verður aldrei alveg eins eftir að náinn ástvinur kveður. Tíminn virðist standa í stað á sama tíma og sólin heldur áfram að rísa og hníga og gangverk mannlífsins heldur áfram.

Þannig má að einhverju leyti lýsa lífinu á Seyðisfirði eftir hamfaraflóðið í desember. Flóðið þyrmdi mannslífum en skildi eftir ör á sálu íbúanna og svöðusár í bæjarmyndinni. Skriðurnar hrifu með sér fjölda bygginga en tóku enga manneskja með í hamförunum.

Þó er til fjöldi frásagna fólks sem var nýfarið af skriðusvæðinu á meðan aðrir voru staddir á heimilum sínum staðsettum í miðri skriðunni. Í hamförunum misstu sumir heimilin sín á meðan aðrir misstu vinnustaðinn sinn. Öll misstum við eitthvað þó að sterkasta tilfinningin sem eftir stendur sé djúpt þakklæti fyrir að ekki fór verr. Skriðan þyrmdi mannslífum þó svo að verkefnið sem eftir stendur sé ærið.

Það eru 1200 ár síðan viðlíka atburðir áttu sér stað á Seyðisfirði og efnahagslegt tjón með því mesta sem við höfum upplifað á Íslandi eftir slíkar hamfarir, metið á yfir tvo milljarða króna. Hreinsunarstarfið hefur verið yfirgripsmikið og lyft hefur verið grettistaki í að hreinsa gríðarlegt magn af leðju og aur, braki úr byggingum og mannhæðarháum steinum.

Þar sem áður stóðu glæsileg hús má nú sjá moldarbrún sár. Vitanlega eru fjölmiðlar hættir að bera fréttir af staðnum enda eru hamfarir mun áhugaverðara fréttaefni en eftirköstin sem samfélagið þarf að takast á við. Það hefur verið styrkur að finna stuðning ríkisvaldsins sem nýverið lagði fram 215 milljónir til þriggja ára til þess að styðja við atvinnulífið sem fékk á sig bylmingshögg en mikið liggur við að endurreisa það svo Seyðisfjörður megi rísa á ný.

Við sem upplifðum öskur fjallsins munum léttinn yfir því að Fjarðarheiðin var fær og hægt að komast úr firðinum þegar bærinn var rýmdur þennan örlagaríka dag. Daginn sem hluti fjallsins lét undan hinum mikla þrýstingi sem margra vikna ofsafengin rigning olli og 72 þúsund rúmmetrar af efni flæddu niður yfir byggðina.

Það er ekki sjálfgefið á þessum árstíma og við sem búum hér og lifum við óboðlegar samgöngur hugsum með óhug til þess ef fjallvegurinn hefði lokað okkur inn í þessum ógnaraðstæðum.

Það er líklega ekkert sem getur hjálpað samfélagi meira eftir slíkt áfall en að staðið verði við áður gefin fyrirheit um öruggar samgöngur með göngum undir Fjarðarheiði.

Sú stund er komin.

Höfundur er oddviti Austurlistans sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×