Skoðun

Meðferð á heimilunum í hruninu og eftirleik þess

Ólafur Ísleifsson skrifar

Íslensk heimili voru grátt leikin í hruninu og eftirleik þess. Varnarleysi þeirra var algert gagnvart fjárhagslegum afleiðingum hrunsins. Vernd neytenda á fjármálamarkaði reyndist ekki upp á marga fiska. Aðgerðir norrænu velferðarstjórnarinnar eins og hún kallaði sig, ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, voru metnar af kjósendum þannig að leitun er að dæmum um annað eins afhroð og þeir guldu eftir fjögurra ára stjórnarsetu í kosningunum 2013.

Mikilvægur áfangi náðist í liðinni viku í baráttunni fyrir hagsmunum heimilanna þegar Alþingi samþykkti beiðni mína og annarra þingmanna Miðflokksins um skýrslu um hag heimilanna í hruninu og eftirleik þess.

Óskað er eftir ítarlegri greiningu á afleiðingum efnahagshrunsins fyrir fjölskyldur og heimilin. Meðal efnisatriða yrðu eftirfarandi þættir þótt ekki sé um tæmandi talningu að ræða:

a. Fjöldi fjölskyldna sem missti húsnæði sitt vegna nauðungaruppboðs, nauðasamninga eða annars konar skuldauppgjörs.

b. Stofnun embættis umboðsmanns skuldara, mat á úrræðum og árangri af störfum embættisins.

c. Árangur af tímabundnum frestunum fullnustugerða og öðrum sambærilegum aðgerðum stjórnvalda vegna skuldavanda heimilanna.

d. 110%-leiðin, mat á árangri og hliðstæðum við önnur lönd.

e. Skuldaleiðréttingin, úttekt á henni og mat á áhrifum hennar.

f. Brottflutningur fólks af landinu í kjölfar hrunsins.

Markmiðið með skýrslubeiðninni er að draga fram áhrif hrunsins og eftirleiks þess á fjölskyldur og heimili landsmanna. Margir misstu hús sín og íbúðir og sparnað sem safnað hafði verið yfir langan tíma. Eignatjón er af óþekktum stærðum á heimsmælikvarða og sögulegan kvarða eins og rakið hefur verið í viðurkenndum hagfræðiritum.

Miðað við upplýsingar opinberra aðila sem m.a. koma fram í svörum ráðherra við fyrirspurnum á Alþingi misstu ekki færri en 10 þúsund fjölskyldur húsnæði sitt, með öllu því raski og angist sem slíku fylgir. Fjölmargir fluttust af landi brott. Með þessum hætti snerti eftirleikurinn tugi þúsunda Íslendinga. Vart er unnt að finna dæmi um eins víðtækt rask á högum einstaklinga og fjölskyldna í nokkru öðru landi nema eftir stórfelldar náttúruhamfarir eða styrjaldarátök. Brýnt er að gerð verði úttekt á þessum atburðum, húsnæðismissi fjölmargra Íslendinga ásamt mati á aðgerðum sem stjórnvöld gripu til.

Í kjölfar efnahagshrunsins hafa málefni er varða aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna verið á borði forsætisráðherra og hlutaðeigandi fagráðuneyta. Í því ljósi, sem og að efnisatriði sem óskað er eftir greiningu á falla undir málaflokka í fleiri en einu ráðuneyti, telja skýrslubeiðendur rétt að forsætisráðherra hafi forystu um gerð skýrslunnar.

Nauðsynlegt er að þekkja afleiðingar hrunsins og áhrif af aðgerðum stjórnvalda. Slík þekking er fallin til að renna stoðum undir aðgerðir til að auka neytendavernd á fjármálamarkaði og verja þannig heimili landsmanna.

Höfundur er alþingismaður Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×