Skoðun

Barna­lán - móður­ást í breyti­legu vaxta­um­hverfi

Arna Pálsdóttir skrifar

Það er ekki svo langt síðan ég fattaði að barnalán þýðir í raun ekkert annað en barna-lán. Ég er að greiða af húsnæðisláni, námsláni og svo greiði ég líka af barnaláni, nánar tiltekið fjórum barnalánum.

Ef þið spáið í því þá myndum við aldrei leyfa neinum að koma fram við okkur með sama hætti og börnin okkar gera. Þau hugsa eingöngu út frá sjálfum sér, gera kröfur og eru tilætlunarsöm því það er jú okkar eini og sanni tilgangur að annast þau, ekki satt?

Ég átti stund fyrr í vetur þegar elsta dóttir mín kom fram úr herberginu sínu með fangið fullt af óhreinu leirtaui. Hún skellti því í eldhúsvaskinn án þess að svo mikið sem taka stöðuna á uppþvottavélinni. Á þessu sama augnabliki ákvað yngsta dóttir mín að njóta þess að vera bleyjulaus og kúka á stofugólfið. Það má því segja að þær hafi báðar drullað yfir mig á nákvæmlega sama augnablikinu.

En aftur að barnalánum. Afborganir barnalána eru misþungar. Tiltekin aldur barna hefur ákveðin verðbólguáhrif. Ég á t.d. dóttur sem er 19 mánaða og dóttur sem er 14 ára. Þarna er greiðslubyrðin þyngst. Ef þær væru námslán væri afborgunin bara af þeim tveimur allavega 75% af útborguðum launum. Þær valda mér báðar svefnleysi, þó með ólíkum hætti. Önnur með öskrum og hin með áhyggjum.

Svo á ég tvær aðrar dætur. Eina sem er 5 ára en ég vil beinlínis meina að ég sé í einhverskonar greiðsluskjóli gagnvart henni. Hún elskar mig út fyrir endimörk alheimsins, ég er best af öllum í hennar huga. Svo finnst henni skemmtilegast að vera úti að leika með vinkonum sínum eða að horfa á teiknimynd. Sú fjórða er 12 ára. Eftir nokkurra ára lágvaxtatímabil hefur mér verið tilkynnt að nú sé orðið tímabært að byrja að borga meira og vænti ég þess að afborganir hækki næstu árin. Núna er svolítið eins og ég sé eingöngu að greiða kostnað og áfallna vexti.

Náttúran sér til þess að við elskum börnin okkar skilyrðislaust. Hún var ansi klók þar hún Móðir náttúra enda sér hún til þess að við greiðum okkar afborganir full þakklætis og full af gleði, þrátt fyrir breytilega vexti, verðbólgu og óvæntan kostnað.

Svo kemur þessi tími dags þegar móðurástin er mest. Tíminn þegar allt er gleymt og fyrirgefið. Svefnlausar nætur, grænt hor og óhreint leirtau er ekki til í orðabókinni. Hjá mér er þessi tími oftast um kl. 21 á kvöldin – eða um það leyti þegar yngstu dætur mínar festa svefn.

Á þeirri stundu man ég. Ég man af hverju ég er að greiða. Ég er að greiða af framtíðinni. Framtíðin er þeirra – og framtíðin er björt.

Höfundur er lögfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×