Skoðun

Skoðun og staðreyndir

Þórir Guðmundsson skrifar

Á skoðanasíðu Vísis eru frá degi til dags greinar eftir ráðherra, þingmenn, verkalýðsforingja, forstjóra og áhugafólk um hin ýmsu þjóðfélagsmál. Þarna má fá í útbreiddasta fréttamiðli landsins innsýn í skoðanir breiðs hóps fólks, yfirleitt vel rökstuddar, ágætlega fram settar og úr nánast öllum áttum. Þetta er sannkallað markaðstorg hugmynda.

Lestur skoðanagreina Vísis hefur aukist markvert á síðustu þremur árum eins og sjá má á Topplista Gallup.  Á sama tíma hefur framboð á greinum stóraukist. Það sýnir okkur að sú áhersla sem við höfum sett undanfarið á gæði aðsendra greina hefur borið árangur.

Þeir tímar, er skoðanasíða Vísis var fyrst og fremst vefbirtingastaður greina úr Fréttablaðinu, eru liðnir. Eftir aðskilnaðinn við Fréttablaðið hefur skoðanasíða Vísis vaxið og dafnað, öðlast eigið líf og er orðinn mikilvægur vettvangur lifandi samfélagsumræðu í landinu. Af því erum við gífurlega stolt.

Ritstýrður vettvangur

Við birtum flestar greinar en ekki allar. Við viljum tryggja ákveðin gæði. Greinar sem við birtum þurfa að standast almennar kröfur um málfar, stafsetningu, lengd, læsileika og sannleiksgildi staðhæfinga. Þær mega ekki vera í andstöðu við lög, þar á meðal ákvæði um hatursorðræðu og ærumeiðingar.

Við birtum ekki greinar ef augljós tilgangur þeirra er að auglýsa vöru eða þjónustu. Skoðanahluti Vísis er vettvangur skoðanaskipta einstaklinga en ekki fréttatilkynninga, fræðigreina eða formlegra yfirlýsinga stofnana eða samtaka.

Lesendur vefs þurfa að geta gengið að því sem vísu að efnisflokkurinn Skoðun innihaldi greinar þar sem fólk teflir fram sínum skoðunum. Veðurfréttir og vísindagreinar eiga þannig almennt ekki heima undir merkjum skoðunar – nema kannski ef um er að ræða skoðun á veðri eða vísindum.

Þú mátt hafa þínar skoðanir en ekki þínar eigin staðreyndir

Yfirleitt þarf ekki að fara mjög nákvæmlega yfir greinar fyrir birtingu. Langflestir þekkja þær óskráðu reglur sem gilda um skoðanaskipti og halda sig innan þeirra. Ein undantekning er þó, sem við höfum aðeins fundið fyrir, en það er þegar greinahöfundar sigla undir flaggi vísindalegrar nálgunar og reyna að koma skoðunum sínum á framfæri í formi fræðilegrar úttektar– sem stundum reynist ekkert sérstaklega fræðileg við nánari skoðun.

Lesendur Vísis eiga heimtingu á lágmarksvirðingu fyrir staðreyndum; að þeim sé ekki boðið upp á rangar eða villandi staðhæfingar eða staðlausa stafi í búningi fræðilegrar umfjöllunar. Og, frómt frá sagt, þá eru umsjónarmenn skoðanasíðu Vísis ekki réttu aðilarnir til að staðreyna vísindalegar staðhæfingar. 

Að því sögðu, þá þurfa greinar almennt að geta staðist fljótlegt staðreyndatékk, hvort sem þær eru fræðigreinar eða ekki. Greinum hefur þannig verið hafnað til birtingar eftir að falla á fyrsta prófi þegar staðhæfingar eru sannreyndar, hlekkir skoðaðir og einföld leit á vefnum leiðir eitthvað allt annað í ljós en höfundur er að halda fram.

Daniel Patrick Moynihan, virtur bandarískur þingmaður sem nú er látinn, sagði einhvern tíma, „Þú átt rétt á að hafa þínar skoðanir. En þú átt ekki rétt á að hafa þínar eigin staðreyndir.“

Það er góð regla.

Höfundur er ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×