Skoðun

Það er í góðu lagi, annars væri það bannað

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Ég hef löngum velt fyrir mér að byrja vera ofboðslega dónalegur við alla sem ég hitti. Láta fólk heyra það ef það þvælist fyrir mér eða bara ef ég get fundið einhvern höggstað á því. Jafnvel að fara sjálfur að halda fram hjá og hvetja aðra til þess. Það er nefnilega allt í lagi að gera alla hluti sem eru ekki ólöglegir, við vitum það öll. Allt sem ríkið setur ekki sektir og refsingar á er það beinlínis að mæla með og gúddera.

Mörgum þykir þetta kannski óeðlileg nálgun, en hún er þó í fullu samræmi við orð Diljár Mistar í nýlegum pistli. Þar bendir hún nefnilega á það að ef ríkið hættir að refsa fyrir vörslu neysluskammta vímuefna þá sé ríkið að senda þau skilaboð að neysla allra þeirra vímuefna sé í lagi. Ég held að Diljá þurfi að hafa hraðar hendur áður en ungdómur þessa lands áttar sig á að það er ekkert sem bannar þeim að skutla sér fram af svölum háhýsa. Það væri bannað ef það væri ekki í lagi og normal að gera. Svo það er vissara að fara sekta fyrir slíkt áður en við missum heilu árgangana.

Nei það er mikill misskilningur að halda það að refsingar séu að fara leysa nokkurn vanda sem kann að fylgja neyslu ólöglegra vímuefna. Tilgangur slíkra refsinga er líka svo öfugsnúinn. Hann refsar eingöngu þeim sem er í besta falli að njóta lífsins á þann hátt sem hann kýs og í versta falli að skaða sjálfan sig. Það er gerólíkt öðrum brotum þar sem viðkomandi brýtur á öðrum. Refsing fyrir vörslu neysluskammta vímuefna þjónar aðeins þeim tilgangi að auka á neyð þeirra sem eru háðir vímuefnum og að draga úr ákvörðunarrétti fullorðins fólks yfir eigin lífi (sem er kaldhæðnislegt komandi frá Sjálfstæðisflokknum). Fyrir utan hvað það er vita gagnslaust að refsa fyrir vörslu slíkra efna, annars værum við búin að ná tökum á neyslunni en ekki að sjá stigmögnun neyslu yfir áratugalangt skeið samhliða bannstefnunni.

Við viljum öll þeim sem eiga við fíknivanda vel og við viljum forða öðrum frá að þróa með sér fíknivanda. En það er ekki nóg að vilja vel heldur þurfum við að vera raunsæ. Við þurfum af skaðaminnkunar, persónufrelsis og efnahagslegum ástæðum að hverfa frá bannstefnunni.

Höfundur er viðskiptafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×