Skoðun

Heilnæmt húsnæði Reykjavíkurborgar

Valgerður Sigurðardóttir skrifar

Sögulegt tekjugóðæri hefur verið hjá Reykjavíkurborg undanfarin ár. Þrátt fyrir það hafa sum börn því miður orðið að glíma við erfið veikindi út af þeim ákvörðunum sem teknar voru fljótlega eftir hrun og á síðustu árum. Það er undarlegt að þrátt fyrir sögulegt tekjugóðæri á síðustu árum þá var ekkert bætt í viðhald á skólahúsnæði. Vissulega var það ákveðið strax eftir hrun að draga úr öllu er við kom rekstri borgarinnar en það er undarlegt að ekki hafi verið fyrir löngu síðan hafinn stórsókn í viðhaldsmálum sem búið er að vanrækja frá efnahagshruninu. Því er það ekkert óvænt að upp komi mygla í húsnæði sem Reykjavíkurborg á.

Fossvogsskóli

Börn hafa verið að veikst alvarlega í Fossvogsskóla. Í annað sinn hefur orðið að flytja þau úr skólahúsnæðinu, núna voru þau flutt upp í Grafarvog. Því miður var það þó þannig að þegar þangað var komið reyndist líka vera mygla í því húsnæði og gera varð töluverðar lagfæringar á því áður en börn úr Fossvogsskóla gátu hafið þar nám. Þrátt fyrir viðgerðir þar þá finna sum börn fyrir einkennum myglu. Nú hefur komið í ljós að ráðast þarf í mjög umfangsmiklar viðgerðir á Fossvogsskóla og börn úr Fossvogi munu því ekki geta snúið aftur í Fossvogsskóla í bráð.

Alvarlega veik börn

Það er augljóst að margra ára uppsafnaður skortur á viðhaldi hefur haft gríðarlegar afleiðingar við vitum ekki hvaða áhrif veikindi þessara barna munu hafa á þau til framtíðar, starfsfólk hefur verið að veikjast og mikla peninga þarf að setja í viðhald á leik- og grunnskólum til þess að gera þá heilnæma. Jafnvel Innriendurskoðun Reykjavíkurborgar varaði árið 2019 í skýrslu við að tryggja þurfi viðhald.

Óháðar úttektir og skýrir verkferlar

Sjálfstæðismenn hafa verið að leggja það til að gerðar verði úttektir af óháðum aðilum á leik- og grunnskólum borgarinnar. Það er einnig furðulegt að engir verkferlar séu til staðar þegar upp kemur mygla í húsnæði á vegum borgarinnar. Nú hefur í tvígang aftur greinst mygla í skólahúsnæði sem hafði verið lagfært, Fossvogsskóla og leikskólanum Kvistaborg. Búið var að lagfæra báðar þessar byggingar en samt greinist aftur mygla í þeim, hvernig má það vera?

Meirihlutinn ræður ekki við verkefnið

Það er orðið ljóst að meirihlutinn í Reykjavík ræður ekki við þetta verkefni. Reykjavíkurborg hefur ekki náð að tryggja börnum og kennurum í Fossvogsskóla eða í Kvistaborg heilsusamlegt vinnuumhverfi. Skýrt er sagt á vefsíðu Reykjavíkurborgar hver ábyrgð skóla- og frístundaráðs sé : „Gætir þess að leikskólar, grunnskólar, frístunda- og félagsmiðstöðvar og frístundaheimili á vegum borgarinnar búi við fullnægjandi húsnæði og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi.“ Vandi meirihlutans í Reykjavík er mikill og það er hann sem þarf að svara fyrir það hvers vegna svona er unnið. Það eru þau sem bera ábyrgð á málefnum leik- og grunnskóla Reykjavíkur. Það að upp sé að koma mygla og börn að veikjast alvarlega eigum við alltaf að taka á af fullum þunga og ekki draga lappirnar í mörg ár með viðgerðum sem eru ófullnægjandi.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×