Skoðun

Sjálfstæðið krefst sjálfstrausts

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Í dag og á morgun fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ég gef kost á mér og óska eftir stuðningi í 3. sæti. Ég hef metnað til þess að vera málsvari þeirra verðmætu gilda og sjónarmiða sjálfstæðisstefnunnar sem reynst hafa íslensku þjóðinni heilladrýgst í gegnum tíðina. Í mínum huga felst ákveðinn kjarni hennar í nafni flokksins, sem hefur skírskotun til sjálfstæðis landsins en getur líka mjög hæglega átt við sjálfstæði okkar allra sem frjálsra einstaklinga.

Sjálfstætt land

Rétt eins og önnur ríki treystir Ísland ákaflega mikið á gott og sanngjarnt samstarf á alþjóðlegum vettvangi. Sem aðstoðarmaður utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hef ég tekið þátt í því mikilvæga verkefni að standa vörð um hagsmuni Íslands, ásamt því að láta gott leiða af þátttöku okkar í margvíslegu samstarfi á alþjóðlegum vettvangi. Sjálfstæði Íslands, sem er meðal annars undirstrikað með því að hafa ekki aðild að Evrópusambandinu, gefur okkur umtalsvert meiri slagkraft en íbúafjöldi okkar segir til um. Við getum komið fram af sjálfstrausti og haft bæði hagsmuni okkar og mikilvægar hugsjónir í hávegum. Ég gef kost á mér til þess að standa vörð um þetta sjálfstæði.

Sjálfstæðir einstaklingar

Öll þau verðmæti sem til verða í samfélaginu eiga upptök sín í framtakssemi einstaklinga. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að stjórnmálmenn séu mjög meðvitaðir um að allar ákvarðanir þeirra geta haft þau áhrif að ýmist styðja við eða draga úr athafnaþreki og frumkvæði í samfélaginu. Að mínum dómi er um þessar mundir sérstaklega mikilvægt að stjórnmálamenn standi vörð um rétt einstaklinga til þess að skapa verðmæti fyrir sjálfa sig og samfélagið. Of frekleg skattheimta, þunglamalegt regluverk og íþyngjandi afskipti af jafnvel smæstu fyrirtækjum geta smám saman dregið þróttinn úr framtakssömu fólki í atvinnurekstri.

Sjálfstæðir einstaklingar sem hafa frelsi til athafna og sjálfstraust til að láta reyna á nýjar hugmyndir eru grundvöllur verðmætasköpunar í samfélaginu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í gegnum tíðina staðið með stolti vörð um möguleika einstaklinga til þess að ná árangri á eigin verðleikum, ekki síst vegna þess að á þeim grundvelli getum við áfram boðið upp á hið góða og mannvænlega velferðarsamfélag sem breið pólitísk sátt ríkir um hér á landi.

Frelsið þarfnast málsvara

Ég óska eftir stuðningi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins því ég tel að mín kynslóð þurfi að axla ábyrgð á því að standa vörð um þau gildi sem sjálfstæðisstefnan byggist á. Ég vil að börnin mín njóti ekki síðri lífsgæða og tækifæra heldur en ég hef gert, og ég veit að til þess að kynslóð foreldra minna fái notið verðskuldaðs öryggis og góðrar þjónustu í framtíðinni þarf að standa vörð um sjálfstæði bæði þjóðarinnar og frelsi einstaklingsins.

Ég vonast eftir tækifæri til að leggja mitt af mörkunum í þeirri baráttu.

Höfundur er hæstaréttarlögmaður, aðstoðarmaður utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og frambjóðandi til 3. sætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×