Skoðun

Ímyndið ykkur sorg þessa barns

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Hugsið ykkur lítið barn sem fær ekki sömu heilbrigðisþjónustu og önnur börn, heilbrigðisþjónustu sem myndi bæði bæta heilsu þessa barns og sjálfstraust. Hugsið ykkur sorg þessa barns. Barnið sér jafnvel að jafnaldrar þess fá þessa heilbrigðisþjónustu, en ekki það sjálft.

Hugsið ykkur einnig sorg foreldra þessa barns sem vita að þau hafa ekki efni á því að veita barni sínu þessa nauðsynlegu heilbrigðisþjónustu. Þau hafa ekki efni á því að bæta líf barns síns.

Börnum er mismunað eftir efnahag

Þetta er því miður raunveruleiki sumra barna á Íslandi þegar kemur að tannréttingum. Tannréttingar barna eru heilbrigðisþjónusta fyrir börn en tannréttingar barna hafa einfaldlega orðið eftir og þær eru dýrar.

Tannréttingar barna geta hæglega kostað fjölskyldur yfir eina milljón kr. og jafnvel kostað allt að tveimur milljónum kr. fyrir eitt barn. Þessu til viðbótar þurfa oft fleiri en eitt barn innan sömu fjölskyldu á tannréttingum að halda. Það segir sig sjálft að ekki hafa allir efni á slíku.

Því foreldrar bera núna þennan gríðarlega kostnað og efnaminni foreldrar veigra sér við að ráðast í tannréttingar barna sinna vegna efnahags.

Það er fullkomlega óboðlegt að börnum sé mismunað eftir efnahag foreldra þegar kemur að tannréttingum.

Gjaldfrjálsar tannréttingar

Tannlækningar barna voru gerðar að fullu gjaldfrjálsar árið 2018 undir forystu Guðbjarts heitins Hannessonar velferðarráðherra. Það var mikið gæfuskref en nú ætti að vera komið að tannréttingum.

Ég hef því nú samið og lagt fram þingmál á Alþingi sem gerir tannréttingar barna gjaldfrjálsar.

Áætla má að kostnaður við gjaldfrjálsar tannréttingar barna geti numið um 1,5 milljörðum kr. en núna lendir þessi kostnaður hjá barnafjölskyldum.

Fram til ársins 1992 var verulegur hluti af tannréttingakostnaði endurgreiddur sem er ekki lengur raunin. Einungis langalvarlegustu málin geta fengið 95% endurgreiðslu en þau eru eðli málsins mjög fá. Önnur börn geta fengið að hámarki 150.000 kr. styrk sem dugar skammt þegar algengur kostnaður við tannréttingar er 800 þúsund til 1,2 milljón kr.

Þessu til viðbótar hefur þessi lága styrkupphæð ekki breyst í 20 ár. Ef styrkurinn hefði fylgt verðlagi væri hann nú um 340 þúsund kr. Á Norðurlöndunum eru tannréttingar barna styrktar mun meira en á Íslandi. Við erum því eftirbátar á þessu sviði, eins og mörgum öðrum, þegar kemur að velferð barna og barnafjölskyldna.

Hver eru bestu þingmálin?

Hver eru raunverulega bestu þingmálin? Það eru þingmál sem skipta máli bæði fyrir börn og barnafjölskyldur, ekki síst þeirra sem hafa minna fé milli handanna.

Þetta þingmál um gjaldfrjálsar tannréttingar sem ég hef nú lagt fram á Alþingi er eitt af þeim. Tökum því þetta eðlilega og réttláta skref saman. Jöfnum leikinn fyrir öll börn.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×