Tímabilinu lokið hjá Hrannari: „Einn mesti sársauki sem ég hef fundið“ Sindri Sverrisson skrifar 16. júlí 2021 16:31 Hrannar Björn Steingrímsson meiddist upphaflega í hné í leik á móti KR snemma á leiktíðinni en þá var talið að innra liðband hefði skaddast. vísir/hulda margrét Hrannar Björn Steingrímsson, leikmaður KA, hefur sett sér það markmið að vera klár í slaginn þegar nýtt Íslandsmót í fótbolta hefst næsta vor. Hann er með slitið krossband í hné.
Hrannar greinir frá þessu í viðtali við Fótbolta.net í dag. Hann meiddist á æfingu á „skraufþurru gervigrasinu upp á KA-svæðinu,“ eins og hann orðar það, þegar hann fékk leikmann af fullum þunga á löppina. „Það er sennilega einn mesti sársauki sem ég hef fundið á ævinni, þetta var bara viðbjóður,“ sagði Hrannar við Fótbolta.net. Auk þess sem að krossband er slitið þá er liðþófi í hnénu rifinn og Hrannar með beinmar. Þá er grunur um lítið beinbrot í sköflungi og lærbeini. Krossbandsslitin þýða að búast má við því að Hrannar verði frá keppni í níu mánuði. „Núna setur maður bara stefnuna á næsta tímabil. Það er stefnan að vera kominn í hóp í fyrstu leikjunum á næsta tímabili,“ sagði Hrannar. Hrannar, sem er 29 ára bakvörður, er uppalinn hjá Völsungi en kom til KA árið 2014 og hefur verið fastamaður í liðinu síðan þá. Hann á að baki 141 deildarleik fyrir KA, þar af 78 í efstu deild, en meiðsli hafa truflað hann í sumar og hann aðeins spilað þrjá deildarleiki.
Pepsi Max-deild karla KA Mest lesið Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Fótbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Handbolti Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Leggja niður störf og föst laun stórmeistara Sport Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Fótbolti Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira