Skoðun

Hvernig fiskeldi viljum við?

Rúnar Gunnarsson skrifar

Ef mælaborð fiskeldis er skoðað má sjá að ársframleiðsla á laxi í sjókvíum var 32.267 tonn árið 2020. Á sama stað má sjá að notuð voru 43.557 tonn af fóðri í þessa framleiðslu. Samkvæmt því þarf um 1,3 kg af fóðri til að ala 1 kg af laxi.

Laxafóður er blanda af grænmetispróteinum (70%) og fiskimjöli (30%) eins og sjá má hér. Það er því ljóst að það þarf að rækta mikið magn af t.d soya eða sólblómum eingöngu til að fullnægja þessari þörf fyrir grænmetisprótein - fyrir utan allt sem er ræktað til manneldis. Einnig þarf mikið magn af fiskimjöli og þar sem nýtingarhlutfall við bræðslu uppsjávarfisks er ekki nema 17-20% eftir tegundum þarf að veiða mikinn fisk til að framleiða það mjöl sem þarf.

Því leyfir maður sér að spyrja: Er fiskeldi virkilega eins umhverfisvænt og sum fullyrða? Gríðarlegt magn af úrgangi fellur til botns og mengar í kringum eldisstöðvarnar. Landsvæði undir ræktun þess próteins sem þarf í fiskeldið er í mörgum tilfellum fengið með skógarhöggi og fiskveiðar til mjölframleiðslu ganga nærri nytjastofnum, sem margir hverjir eiga undir högg að sækja.

Nú geri ég mér vel grein fyrir því að fiskeldi er stór atvinnugrein og hluti af fæðuöryggi heimsins. Það þýðir hins vegar ekki að við getum ekki gert ríkar kröfur um að iðnaðurinn sé umhverfisvænni. Loftslagið krefst þess.

Framtíð fiskeldis

Samkvæmt viðtali við stjórnarformann stærsta hluthafa íslenska laxeldisfyrirtækisins Arnarlax er sjókvíaeldi í opnum kvíum á útleið. Er því ekki kjörið tækifæri til þess að koma fiskeldi á land, eða í það minnsta lokaðar kvíar, og gera með því fiskeldi minna mengandi en það er núna? Ég tel hyggilegt að hlusta á þau orð og fara strax að huga að öðrum fiskeldislausnum en opnum sjókvíum.

Landeldi sleppir ekki úrgangi í sjóinn, þar er hægt að ná honum og nýta til vinnslu á metangasi og áburði svo dæmi sé nefnt. Svipað mætti gera með lokaðar sjókvíar. Líklega þyrfti minna fóður því það félli ekki niður í gegnum netamöskva kvíanna og þar með minnkar sótspor fóðurframleiðslunnar.

Píratar hafa sett sér stefnu í fiskeldismálum. Þar segir meðal annars: „Markmið okkar er að hagkvæmara verði að stunda fiskeldi á landi en í sjó. Við munum tryggja að löggjöf um fiskeldi á landi verði einföld og skilvirk. Ljóst er þó að afkoma fjölmargra Íslendinga byggir á því sjókvíeldi sem nú þegar hefur byggst upp við landið. Við hyggjumst ekki kollvarpa fyrir þeim rekstri sem nú þegar er kominn á laggirnar, en gerum kröfu um að fiskeldið fari fram í lokuðum kvíum.“

Höfundur skipar 3. sæti á lista Pírata í Norðausturkjördæmi við Alþingiskosningarnar 25. september.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×