Skoðun

Efla þarf náms­tæki­færi full­orðinna

Hólmfríður Árnadóttir, Helga Tryggvadóttir og Linda Björk Pálmadóttir skrifa

Menntamál skipta máli þegar kemur að hagsæld og velferð þjóðar. VG hefur alla tíð lagt áherslu á skýra menntastefnu enda þarf stöðugt að endurskoða og aðlaga menntakerfið að þörfum og fjölbreytileika mannlífsins. Á kjörtímabilinu hefur margt jákvætt átt sér stað, má þar nefna að atvinnuleitendum hefur verið gert kleift að sinna námi á óskertum bótum og framhalds- og háskólar fengið aukin framlög til að taka á móti þeim sem sækja um nám. Á sama tíma hafa styrkir til rannsókna verið auknir. Menntun er samfélagsmál og forsenda þróunar og nýsköpunar hverrar þjóðar, þar skipta öll skólastig máli.

Það skólastig sem okkur langar að fjalla um er framhaldsfræðslan, sem er stundum kölluð fimmta stoðin í menntakerfinu. Það er mat okkar þriggja að framhaldsfræðslan þurfi enn frekari fjárstuðning til að mæta þeim fjölbreytta stækkandi hópi fullorðinna námsmanna sem fer óhefðbundnar leiðir í námi. Sömuleiðis þarf að framfylgja enn betur lögum sem sett voru um þessa fræðslu árið 2010. Til glöggvunar þá felur framhaldsfræðsla í sér þrjá megin þætti: Náms- og starfsráðgjöf, raunfærnimat og námsleiðir sem eru styttri en þær sem við þekkjum í framhaldsskóla en hægt er að fá metnar til eininga. Námsleiðirnar eru allt frá nokkrum tuga klukkustunda upp í 1200 og er markmiðið alltaf að efla færni einstaklinga bæði almennt og sérhæft tengt störfum.

Við velkjumst ekki í vafa um mikilvægi leik-, grunn-, framhalds- og háskóla en það eru ekki öll sem feta þá leið. Hvað með þau sem hafa horfið frá námi vegna ólíkra ástæðna og standa af þeim sökum hallari fæti þegar kemur að menntun og atvinnu? Mörg hafa hætt í skóla, stundum strax að loknu grunnskólanámi eða í framhaldsskóla og jafnvel misst vinnuna og þurfa þess vegna að leita á önnur mið. Þetta er einmitt hópurinn sem sækir menntun í framhaldsfræðslu. Símenntunarmiðstöðvar sem sinna framhaldsfræðslu hafa breytt ásýnd menntunar og gert hana aðgengilegri fyrir þennan fjölbreytta hóp og það þarf að tryggja fjármögnun í takt við eftirspurn. Nú er kominn tími á aðalnámskrá fyrir framhaldsfræðsluna og enn markvissari aðkomu ríkis að menntunarmálum þeirra sem vilja efla sig og sækja sér menntun eftir 18 ára aldur.

Jafnt aðgengi að menntun er lykilatriði og í aðalnámskrá framhaldsfræðslu þarf að taka tillit til mismunandi þarfa einstaklinga og hópa. Það þarf líka að huga að þeim sem standa höllum fæti í námi á fullorðinsárum og mæta þeim þar sem þau eru með enn fjölbreyttari námsúrræðum. Við sjáum fram á ótal tækifæri og möguleika á næsta kjörtímabili. Við verðum að tryggja öllum þeim sem vilja mennta sig á fullorðinsárum tækifæri út frá félagslegu réttlæti og jöfnuði. Það verður að viðurkenna og fastsetja framhaldsfræðsluna sem skólastig og fjárfesta þannig í mannauði þjóðarinnar allrar.

Hólmfríður Árnadóttir, menntunarfræðingur og oddviti VG í Suðurkjördæmi

Helga Tryggvadóttir, náms- og starfsráðgjafi, 5. sæti VG í Suðurkjördæmi

Linda Björk Pálmadóttir, verkefnastýra námsleiða, 11. sæti VG í Suðurkjördæmi




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×