Skoðun

Svona bætum við kjör barna­fólks

Jóhann Páll Jóhannsson og Dagbjört Hákonardóttir skrifa

Millitekjufjölskyldur fá umtalsverðan stuðning í formi barnabóta alls staðar á Norðurlöndunum nema á Íslandi.

Í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er kerfið ekki bara hugsað sem fátæktarhjálp fyrir þau allra tekjulægstu heldur sem almennt stuðningsnet, verkfæri til að létta undir með fólki sem er að ala upp börn.

Rannsóknir hafa margsýnt að sterk almenn barnabótakerfi með viðbótarstuðningi við einstæða foreldra eru best til þess fallin að draga úr barnafátækt til langs tíma. Skarpar tekjutengingar og skerðingar sem bíta snemma geta aftur á móti skapað fátæktargildru fyrir fólk í lægri tekjuhópum.

Frá árinu 1990 hefur stuðningur með hverju barni minnkað um meira en helming í hlutfalli við landsframleiðslu á Íslandi. Við í Samfylkingunni viljum snúa af þeirri braut og óskum eftir umboði kjósenda til að innleiða barnabótakerfi að norrænni fyrirmynd.

  • Í fyrsta lagi viljum við að barnabætur verði greiddar út mánaðarlega en ekki fjórum sinnum á ári. Þannig mun stuðningurinn nýtast betur í reglulegum heimilisrekstri og fólk eiga auðveldara með að láta enda ná saman um hver mánaðarmót.
  • Í öðru lagi viljum við að skerðingarmörkin verði hækkuð þannig að fleiri njóti stuðnings en áður. Markmiðið er að meðalfjölskylda með tvö börn, sem í dag fær engar barnabætur, fái 54 þúsund krónur í hverjum mánuði og einstætt foreldri um 77 þúsund krónur, miðað við núverandi verðlag og aðstæður. Með þessu drögum við úr skattbyrði lágtekju- og millitekjufólks og lækkum jaðarskatt á hverja viðbótarkrónu sem fólk vinnur sér inn.
  • Í þriðja lagi ætlum við að hækka greiðslur í fæðingarorlofi og fæðingarstyrk námsmanna og foreldra utan vinnumarkaðar. Þetta þarf að gerast samhliða stóraukinni uppbyggingu leigu- og búseturéttaríbúða í samstarfi við húsnæðisfélög án hagnaðarsjónarmiða, en með því drögum við úr húsnæðiskostnaði og aukum þannig enn frekar ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna.

Þetta er raunhæft, þetta er sanngjarnt og þetta er mikilvægt en kallar á gjörbreytta forgangsröðun við landstjórnina. Við leggjum til að kjarabæturnar verði fjármagnaðar með stóreignaskatti, hærri veiðigjöldum á stórútgerðir og hertu skatteftirliti. Það hefur nefnilega verið dekrað nóg við sérhagsmunaöflin í landinu. Nú er kominn tími á almenning .

Höfundar eru þingframbjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×