Opna sérstakt liðskiptasetur á Akranesi Atli Ísleifsson skrifar 31. ágúst 2021 11:31 Liðskiptasetur mun opna innan Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi í mars á næsta ári. Vísir/Vilhelm Til stendur að opna sérstakt liðskiptasetur, skurðstofu þar sem eingöngu er sinnt liðskiptaaðgerðum, við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Er reiknað að með opnuninni muni liðskiptaaðgerðum hér landi fjölga umtalsvert.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að gert sé ráð fyrir að liðskiptasetrið taki að fullu til starfa í mars á næsta ári. „Stofnunin verður þá með getu til að framkvæma um 430 aðgerðir á ári sem er rúmlega tvöföldun á núverandi afkastagetu. Stofnun setursins er liður í víðtækari áætlun sem unnið hefur verið að síðustu misseri í samræmi við ákvörðun heilbrigðisráðherra, til að mæta vaxandi þörf fyrir þessar aðgerðir, stytta bið fólks í brýnni þörf, bæta verkferla og samræma þjónustuna. 300 aðgerðir til viðbótar í sérstöku átaksverkefni Að jafnaði eru gerðar rúmlega 1.500 liðskiptaaðgerðir á ári við Landspítala, Sjúkrahúsið á Akureyri og HVE. Með tilkomu liðskiptasetursins er stefnt að varanlegri árlegri fjölgun sem nemur um 260 aðgerðum á ári. Vegna COVID-19 hafa aðgerðir síðustu misseri verið nokkru færri en að jafnaði. Því hefur verið ákveðið að ráðast í sérstakt átak til 12 mánaða til að fjölga aðgerðum enn frekar tímabundið og stytta biðlista. Í því átaki er gert ráð fyrir að gerðar verði um 300 liðskiptaaðgerðir sem koma til viðbótar þeirri fjölgun sem leiðir af opnun liðskiptasetursins á Akranesi,“ segir í tilkynningunni.
Heilbrigðismál Akranes Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Heilbrigðisstofnun Vesturlands Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Sjá meira