Trudeau í kröppum dansi í sjónvarpskappræðum Þorgils Jónsson skrifar 10. september 2021 14:25 Erin O'Toole, formaður Íhaldsflokksins og Annamie Paul frá flokki Græningja hlýða á Justin Trudeau, forsætisráðherra og formann Frjálslynda flokksins, í sjónvarpskappræðum í gær. Trudeau boðaði til kosninga í þeirri von að styrkja stöðu sína á þingi, en vopnin virðast hafa snúist í höndunum á honum. Mynd/AP Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, lenti í harðri sennu í sjónvarpskappræðum flokksformanna í gær, en þingkosningar fara fram þar í landi eftir tíu daga. Trudeau, sem hefur setið í stóli forsætisráðherra í sex ár, rauf óvænt þing í síðasta mánuði og boðaði til kosninga tveimur árum fyrr en ráðgert var. Þetta gerði hann í ljósi góðrar stöðu hans og Frjálslynda flokksins í skoðanakönnunum.
Síðustu tvö ár hefur Trudeau farið fyrir minnihlutastjórn sem reiðir sig á stuðning vinstri flokka, en vonir stóðu til þess að almenn ánægja kanadískra kjósenda með viðbrögð stjórnar hans í Covid-16 faraldrinum myndi tryggja honum hreinan meirihluta á þingi. Eitthvað snerust vopnin í höndunum á Trudeau, því útspilið þótti mörgum bera vott um tækifærismennsku og ábyrgðarleysi, þar sem mannsöfnuður á kjörstöðum færi ekki vel saman við sóttvarnir í heimsfaraldri. Trudeau var meðal annars gagnrýndur fyrir aðgerðarleysi í loftslagsmálum og málefnum frumbyggja, en háði hörðustu rimmuna við formann Íhaldsflokksins, Erin O‘Toole. Sem stendur er Íhaldsflokkurinn með naumt forskot í skoðanakönnunum, 33% á móti 30% Frjálslynda flokksins.
Kanada Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Fleiri fréttir Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Sjá meira