Skoðun

Breiða­blik og heima­völlurinn

Pétur Hrafn Sigurðsson skrifar

Kvennalið Breiðabliks hefur skrifað nafn sitt í knattspyrnusögu landsins með því að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu þar sem 16 bestu knattspyrnulið álfunnar leika. Þar eru auk Breiðabliks ekki ómerkari félög en Real Madrid, Barcelona, Chelsea, Arsenal, Bayern og Lyon. Ljóst er að Breiðablik þarf að spila vel gegn þessum bestu liðum álfunnar og þar skiptir heimavöllurinn miklu máli. Það er því dapurlegt til þess að vita að svo gæti farið að þær fái ekki að spila á Kópavogsvelli vegna ófullkominna aðstæðna. Sér í lagi vegna þess að það hefði aðeins þurft smá framsýni bæjarfulltrúa í Kópavogi til að svo hefði getað orðið.

Flóðljósin uppfylla ekki kröfur

Þegar verið var að endurnýja flóðljósin á Kópavogsvelli samþykkti bæjarráð í janúar 2019 að hafa 500 lux lýsingu á Kópavogsvöll sem er lágmarkskrafa KSÍ en fullnægir ekki skilyrðum UEFA. Ég lagði því til að lýsingin yrði 800 lux sem myndi fullnægja kröfum UEFA. Sú tillaga var felld í bæjarráði með öllum greiddum atkvæðum gegn mínu. Ég bókaði eftirfarandi.

"Undirritaður telur ekki skynsamlegt að miða við lágmarkskröfur er varðar lýsingu á Kópavogsvöll sem er aðalleikvangur bæjarins. Mannvirkjunum er ætlað að nýtast næstu áratugi. Hætta er á að slíkar kröfur verði úreltar eftir nokkur ár og situr þá Kópavogur uppi með lýsingu sem ekki mætir kröfum nútímans. Eðlilegra er að miða lýsingarkröfur við 800 lux.

Bæjarstjórinn í Kópavogi Ármann Kr. Ólafsson sá ástæðu til að leggja fram eftirfarandi bókun: „Ákvörðun um lýsingu stenst þær kröfur sem gerðar eru til lýsingar á knattspyrnuvöllum.“

Skammsýni

Því miður er það hræðileg skammsýni bæjarfulltrúa í bæjarráði Kópavogs sem veldur því að Kópavogsvöllur stenst ekki kröfur UEFA. Það er hlutverk sveitarfélaga að skapa aðstöðu fyrir íþróttafélögin. Í mörgum tilfellum hefur vel tekist til hjá Kópavogi, en í þessu tilfelli var það skammsýnin sem hafði yfirhöndina.

Ef og hefði

Þetta hefur haft í för með sér að karlalið Breiðabliks þurfti að leika á Laugardalsvelli gegn Aberdeen í Evrópukeppninni og féll úr keppni. Það má alveg leiða líkum að því að karlaliðið hefði komist áfram í næstu umferð ef liðið hefði leikið á sínum heimavelli enda þekkt að heimavöllurinn skiptir máli. Ef karlaliðið hefði komist áfram væru miljónatugir króna að streyma í kassann. Hver sigur Breiðabliks í Meistaradeild kvenna skilar milljónum í kassann og sigurlíkur auðvitað meiri ef leikið verður á heimavelli.

Framtíðin

Knattspyrnudeild Breiðabliks er stærsta knattspyrnudeild landsins. Bæði kvenna- og karlaliðin eru í toppbaráttu á Íslandi, bæði lið eru vel skipuð leikmönnum á besta aldri sem eiga framtíðina fyrir sér. Fjöldi efnilegra leikmanna munu skila sér í meistaraflokkana á næstu árum. Breiðablik hefur alla burði til að ná árangri í Evrópukeppnum. Kannski verður erfiðasta hindrunin á þeirri leið ákvörðun bæjarfulltrúanna frá því í janúar 2019 sem gerir það að verkum að liðin munu ekki geta spilað evrópuleiki sína á heimavelli.

Það má því segja að bæjarráðið hafi sparað aurinn en hent krónunni í ákvarðanatöku sinni við uppbyggingu flóðljósanna á Kópavogsvelli.

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×