Skoðun

Þú ert sósíal­isti

Kristbjörg Eva Andersen Ramos skrifar

Sósíalismi hefur verið á allra vörum síðastliðna mánuði og er það ekki seinna vænna. Á meðan ég skrifa þennan pistil breiðist fátæktin og óréttlandið víða um samfélagið. Háværum köllum alþýðunnar um betra samfélag hafa verið þögguð niður af auðvaldinu sem vill telja þér trú um að þú hafir það gott og annað sé bara frekja. Auðvaldið vill ýta undir sjónarhorn hins vestræna heims um að sósíalismi sé dauður og því sé eina svarið að hagræða og fórna plánetunni í leiðinni. Stjórnvöld eru því miður í litlu sambandi við þarfir og raunveruleika fólks. Veruleikafirringin er það mikil. Heimurinn blæðir en skaðinn er þó skeður. Meðal eldri kynslóðanna er sósíalismi ennþá talið vera skítugt og eitrað. Hvað með það, byltingin lifir þar til byltingin sigrar og það er tímabært að fá eina róttæka byltingu hér á Íslandi.

Ég vona að við getum verið sammála að allir eiga skilið að lifa mannsæmandi lífi með mannsæmandi kjör og að eiginleikar hvers og eins séu metnir að verðleikum. Við getum verið sammála um að við viljum að komandi kynslóðir geti notið góðs af jörðinni okkar. Í kapítalisma er fátækt og eyðilegging óhjákvæmleg, alheimsklukkan tifar og er stutt í algera eyðileggingu. Unga kynslóðin öskrar á breytingar.

Þeir sem búa yfir einhverri samúð og náungakærleik og myndu jafnframt ekki skilgreina sig sem sósíópata vilja búa í samfélagi þar sem jafnrétti og mannsæmandi kjör fyrirfinnast.

Það er kominn tími til að svipta hulunni af leiksýningu stjórnvalda og horfast í augu við þá staðreynd að gjörðir þeirra eru skaðlegar núverandi og komandi framtíð.

Þú vilt búa í heimi þar sem að hagnaður er ekki tekinn fram yfir mannslíf, þitt mannslíf.

Marx dró fram spurninguna: „Ef kapitalismi er ekki að fara að hverfa eins síns liðs hvernig ættu sósíalistar að koma betri heim á framfæri?“ Sannleikurinn er sá að breytingarnar eru í okkar höndum og hver og einn hefur færnina til að breyta heiminum. Við getum komið fram róttækum breytingum á kerfinu og hagsmunagæslu almennings. Með tilkomu sósíalistaflokksins má segja að vindur hafi færst í seglinn. Við erum búin að reyna kapítalismann og hann hefur sannað það of oft að hann er ekki svarið. Það er tímabært að fara að svara kalli krísunnar sem við lifum í.

Höfundur er í 7. sæti Sósíalistaflokksins fyrir Reykjavík Norður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×