Skoðun

Heppni

Jóna Guðbjörg Torfadóttir skrifar

Í þessu þjóðfélagi sem við búum í ríður mjög á að vera heppin(n). Það veltur mjög á heppni hvaða spil eru á hendi í upphafi og ennfremur hvernig gengur að spila úr þeim. Það þarf lítið út af að bregða fyrir margan til að ágætis líf breytist í andhverfu sína. Ef vel á að vera þarf helst tvær útivinnandi manneskjur til að halda heimili. Flest þurfum við að standa skil á húsaleigu eða afborgun af húsnæðisláni ásamt því að eiga fyrir öðrum nauðsynjum um hver mánaðamót.

Fólk sem hefur það ágætt, hefur í sig og á og stendur skil á sínu er mögulega sátt við ríkjandi ástand. Kanske er það jafnvel hrætt við einhverjar breytingar sem gætu dregið úr lífsgæðum þess. Það vill jú halda áfram að hafa það ágætt og það er ósköp eðlilegt. Það er þó jafn þarft að hugsa til þess hvað verður ef breytingar verða á mánaðarlegri innkomu sem við öll reiðum okkur á; ef heilsan gefur sig eða slys ber að höndum. Þá tekur við tekjumissir sem umturnar lífi fólks. Kanske ertu svo heppin(n) að þetta mun aldrei henda þig en viljum við eiga allt okkar undir því?

Lyfja- og lækniskostnaður reynist mörgum þungur baggi og sér í lagi þegar innkoman er einungis lágar örorkubætur. Slíkri stöðu fylgir mikil skerðing lífsgæða og fátæktin bíður álengdar. Það er vont að vera óheppin(n) og nógu erfitt er að fást við heilsuleysi að ekki fylgi honum einnig afkomukvíði. Hann getur nefnilega verið býsna stuttur slóðinn frá ágætu og næsta áhyggjulausu lífi til biðraðarinnar hjá matarúthlutun Fjölskylduhjálparinnar.

Sósíalismi snýst um að smíða samfélag þar sem enginn á að þurfa að lifa við afkomukvíða enda hefur margsinnis verið sýnt fram á að það er nóg til handa öllum. Það þarf bara að ráðast í að leiðrétta ýmsan ójöfnuð sem hefur fengið að viðgangast allt of lengi. Sósíalistaflokkurinn hefur markað sér skýrar stefnur í öllum helstu málaflokkum með það fyrir augum að hér fái að þrífast velferðarsamfélag fyrir okkur öll en ekki einungis þau sem eru með góð spil á hendi. Enda er löngu sýnt að það er vitlaust gefið.

Setjum X við J í stað þess að reiða okkur á heppni!

Höfundur er félagi í Sósíalistaflokki Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×