Skoðun

Er fullreynt með fullveldið?

Karl Gauti Hjaltason skrifar

Vinstri flokkarnir virðast hafa það eitt að markmiði að stækka ríkisbáknið, hækka skatta, draga úr frelsi fólks og þrengja þannig að öllu athafnafrelsi í landinu. Miðflokkurinn hefur á þessu sviði markað sér stöðu með athafnafrelsi og gegn þeirri hugsun að ríkið hafi lausnir við öllum vandamálum. Þvert á móti teljum við að sé einstaklingum veitt svigrúm, innan marka skynsamlegra reglna, þá verði til hagkvæmari og fjölbreyttari lausnir á mörgum vandamálum líðandi stundar. Kjarninn í stefnu Miðflokksins er virðing fyrir fullveldi landsins og frelsi einstaklinga. Til að tryggja þetta er nauðsynlegt að minnka ríkisbáknið, einfalda regluverk og draga úr kerfisræði á Íslandi. Þannig er unnt að draga úr álögum á almenning og minni fyrirtæki fá aukið frelsi til að skapa ný störf og aukin verðmæti.

Að standa í báða fætur

En baráttan fyrir fullveldinu nær til fleiri þátta. Skilgreining og afmörkun lýðveldisins er kannski stærsta áskorunin. Hvernig við beitum fullveldinu í samskiptum við aðrar þjóðir. Formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur umfram aðra stjórnmálamenn sýnt í verki hve mikilvægt er að verja fullveldi landsins. Fyrst í Icesave-málinu, þegar aðrir guggnuðu stóð hann í báða fætur. Síðar, þegar kom að uppgjöri við kröfuhafa slitabúa bankana, stefnumörkun landsins gagnvart hinum nýju eigendum Íslands var hann réttur maður á réttum stað. Með skýrri stefnu og fullveldið að vopni lagði ríkisstjórn Sigmundar Davíðs grunn að fjárhagslegu frelsi þjóðarinnar á ný. Þess njóta landsmenn og ríkissjóður var nánast skuldlaus við útlönd þegar kórónuverufaraldurinn lagði nýjar áskoranir á okkur.

Stöndum með fullveldi landsins

Það er skylda okkar sem stöndum í stjórnmálabaráttu að gera grein fyrir stefnu okkar og hugsjónum. Við Miðflokksmenn leggjum þannig áherslu á sjálfstæði og fullveldi landsins út á við en fullveldishugsunin nær einnig til þess að einfalda regluverkið innanlands þannig að stofnanir ríkisins vinni fyrir borgara landsins en ekki öfugt. Einhver gæti sagt að þetta sé sjálfsögð og eðlileg krafa en það er því miður svo að margir í atvinnulífinu þurfa að verja stórum hluta tíma síns í að uppfylla tilgangslitlar kvaðir og sinna pappírsvinnu sem taka tíma frá verðmætaskapandi vinnu. Það er vegna þessara þátta sem við Miðflokksmenn tölum fyrir einföldun regluverks, ekki vegna þess að við ætlum að draga úr ábyrgð og skyldum atvinnulífsins heldur að gera því kleift að vaxa og styrkjast. Okkar stefna er að fyrir hverja eina nýja hamlandi reglugerð, eigi tvær að víkja.

Höfundur er þingmaður og oddviti Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×