Skoðun

Heilbrigð sál í hraustum líkama

Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar

Heilbrigðisskimun fyrir alla yfir fertugu.

Hér áður fyrr var gjarnan sagt að sama hversu allt væri svart, „ég hef þó góða heilsu“. Með nútímalæknisfræði og þekkingu sem stöðugt er að aukast, er hægt að greina marga sjúkdóma á byrjunarstigi. Slík greining kemur ekki aðeins í veg fyrir óþarfa þjáningar fólks heldur er verulegur fjárhagslegur ábati af því að greina sjúkdóma snemma.

Margir af þeim sjúkdómum sem vestræn samfélög glíma við eru svokallaðir lífsstílssjúkdómar. Þetta er ekki algilt enda vitum við Íslendingar af reynslunni hversu miklu máli skiptir að greina krabbamein snemma þar sem skimanir fyrir tilteknum tegundum krabbameina hafa tíðkast um langt árabil. Ekki er síður nauðsynlegt að hjálpa fólki tímanlega þegar stefnir í óáran af öðrum ástæðum.

Enginn kostnaður, einungis ávinningur

Kostnaður við skipulagðar heilbrigðisskimanir er enginn til langs tíma litið, en hann getur vissulega verið nokkur í byrjun. Til að tryggja að heilbrigðisskimanir virki leggur Miðflokkurinn eftirfarandi til: Ríkið greiðir þeim sem uppfylla þau skilyrði sem heilbrigðisyfirvöld setja um framkvæmd skimunar, fast gjald fyrir framkvæmdina. Þetta tryggir samkeppni um að veita sem besta þjónustu. Gjaldið mun taka mið af kostnaði enda er hér ekki hugsunin að stofnuð verði gróðafyrirtæki. Almenningur velur hvar skimun er framkvæmd. Það er eðlilegt að fólk hafi val um hvar það fer í skimun enda tryggir orðspor þeirra sem stunda slíka þjónustu að besta þjónusta sé veitt.

Íslenska heilbrigðiskerfið er illa statt. Staðsetning þjóðarsjúkrahúsbyggingar er ekki eina ástæðan. Fleira mætti nefna eins og samdrátt í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og andstöðu núverandi heilbrigðisyfirvalda gegn einkarekinni heilbrigðisþjónustu. Það má vissulega leggja margt á sig til að stöðva þá þróun að hér verði sósíalískt heilbrigðiskerfi með öllum þeim göllum sem slíku kerfi fylgja.

Í tillögum Miðflokksins eru að sjálfsögðu varnaglar. Í fjölskyldum þar sem er ættgengir sjúkdómar eru þekktir, mun yngra fólk fá skimun. Eftirfylgni á þriggja ára fresti og oftar ef þurfa þykir tryggir okkur mestu lífsgæði sem hugsast getur. Slíkt verður ekki metið til fjár.

Fyrirkomulag sem þetta er víða þekkt, en hér á Íslandi en það er hins vegar fyrst og fremst efnafólk sem nýtir sér slíka þjónustu í heilbrigðiskerfinu.

Þetta er aðgerð sem gagnast öllum, ekkert er meira virði en góð heilsa.

Við gerum það sem við segjumst ætla að gera.

Höfundur skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×