Skoðun

Opnum faðminn

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir og Rannveig Guðmundsdóttir skrifa

Fráfarandi ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur vakið furðu margra fyrir skort á mannúð í framkomu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Dæmin sýna það; egypska fjölskyldan sem Íslendingar tóku höndum saman um að fela, íranski trans strákurinn sem stjórnvöld ætluðu að vísa úr landi og þurfti grettistak Samtakanna ‘78 og þjóðarinnar til að verja, ófríska albanska konan sem vísað var úr landi þvert á tilmæli heilbrigðisstarfsfólks, þolandi mansals sem flúði ofbeldi í Nígeríu og festi hér rætur en var vísað úr landi og afganska fjölskyldan sem senda átti úr landi en var varin af samnemendum barnanna í Hagaskóla. Þá voru umsækjendur um alþjóðlega vernd í vor sviptir fæði og húsnæði af Útlendingastofnun sem síðar var úrskurðað ólögmætt af kærunefnd útlendingamála líkt og lögfræðingar og félagasamtök höfðu ítrekað bent á. Trekk í trekk hefur almenningur þurft að taka höndum saman til að verja flóttafólk og hælisleitendur fyrir ofstæki íslenskra stjórnvalda.

Samfylkingin vill taka við fleira fólki á flótta. Við viljum stöðva brottvísanir til ríkja þar sem mannréttindi eru ekki virt og ríkja sem komin eru að þolmörkum vegna fjölda flóttafólks. Samfylkingin vill ekki úthýsa börnum. Hættum að senda barnafjölskyldur úr landi og tökum betur á móti fólki af erlendum uppruna sem ákveður að koma hingað og leggja til samfélagsins. Þetta gerum við meðal annars með öflugri móðurmáls- og íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni og stuðningi við frjáls félagasamtök sem styðja við fólk af erlendum uppruna. Lykilatriði er að greiða leið fólks af erlendum uppruna inn í íslenskt samfélag og veita börnum sem setjast hér að sömu tækifæri og íslenskum börnum. Mikilvægt er að bæta hæliskerfið og móta nýja stefnu í málefnum fólks af erlendum uppruna með mannúð og mannréttindi að leiðarljósi.

Ríkisstjórnin hefur falið sig á bak við afar þröngar túlkanir á útlendingalögum við meðferð á umsóknum, og ekki er tekið tillit til viðkvæmrar stöðu fólks eins og þegar um er að ræða hinsegin fólk, börn, veikt sem og fatlað fólk.

Þess vegna þurfum við nýja ríkisstjórn strax í haust!

Höfundar eru frambjóðendur til Alþingis á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×