Skoðun

Norðurslóðir án íss!

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Norðurslóðir eru að hlýna þrisvar sinnum hraðar en önnur svæði í heiminum. Ísinn á Norðurskautinu hefur aldrei mælst minni og á aðeins örfáum árum hefur íshellan minnkað um flatarmál sem nemur Frakklandi, Spáni, Þýskalandi, Póllandi og Ítalíu samanlagt. Grænlandsjökull bráðnar nú sem aldrei fyrr og snjókoma dagsins í dag og til framtíðar vegur ekki lengur upp á móti bráðnuninni, jafnvel þótt hlýnun jarðar myndi stöðvast í dag. Norðurslóðir án íss eru því miður ekki svo fjarlæg fullyrðing.

Það að sporna við loftlagsbreytingum er eitt brýnasta verkefni stjórnmálanna og það kallar á alþjóðlegt samstarf, enda er loftslagsváin áskorun án landamæra.

En það er ekki nóg að sporna við loftlagsbreytingum, við þurfum líka að búa okkur undir þær breytingar sem hafa orðið og munu verða. Innviðir okkar þurfa að þola aukið álag með miklum og örum veðurbreytingum. Með minnkun sífrera, flata þar sem frost fer ekki úr jörðu, aukast t.d. líkur á aurflóðum og þurfa vegir, raflagnir og aðrar veitur að þola aukið álag.

Það sem gerist á Norðurslóðum á ekki bara erindi við okkur sem þar búum heldur hefur hlýnunin áhrif um allan heim, t.d. með hækkun sjávarstöðu. Þess vegna hafa öll helstu ríki heims myndað sér stefnu í málefnum Norðurslóða, líka fjarlæg ríki í Asíu.

Í ógninni leynast líka tækifæri

Fyrir Ísland felast margvísleg tækifæri í auknum alþjóðlegum áhuga á norðurslóðum. Sem friðsamt smáríki, miðja vegu milli Norðurskautsríkjanna í austri og vestri, er Ísland í ákjósanlegri aðstöðu til að marka sér enn frekari sess sem vettvangur umræðu og ráðstefnuhalds um Norðurslóðir. Rannsóknir eru forsenda þess að greina megi þær öru breytingar sem eru að eiga sér stað á Norðurslóðum og meta hvaða viðbragða er þörf. Norðurslóðarannsóknir snerta mörg fræðasvið og kalla á virkt alþjóðlegt samstarf. Þar liggja mikil sóknarfæri fyrir Ísland til þess að vera vettvangur opinnar umræðu um rannsóknaniðurstöður, leiða saman rannsakendur frá ýmsum löndum, finna leiðir til að hagnýta rannsóknaniðurstöður og stuðla að nýsköpun. Það er því mikilvægt að nýta krafta fræðasamfélagsins sem heildar hér á landi til að nýta sem best þekkingu þess og reynslu, enda eru verkefni framtíðarinnar krefjandi og kalla á framsýnar lausnir, öflugt samstarf og víðtæka þátttöku fræðasamfélagsins í samstarfi við einkaaðila, sveitarfélög og ríki.

Arctic partý

Fyrrverandi forseti okkar, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur ómað í sjónvarpstækjum landsmanna og boðið í partý – „fögnum saman loksins“, segir Ólafur Ragnar. En hugarfóstur hans Hringborð Norðurslóða (Arctic Circle) hefur frá 2013 verið einn helsti opni umræðuvettvangurinn í heiminum um málefni Norðurslóða. Stjórnmálamenn, fræðafólk og fulltrúar grasrótarsamtaka og atvinnulífs hafa komið saman og rætt um Norðurslóðir, áskoranir og tækifæri framtíðarinnar. Í dag hefst partýið og ég ætla að mæta og hlusta.

Hver veit nema rannsóknir, tækniyfirfærsla og nýsköpun tengt Norðurslóðamálum og hringrásarhagkerfinu verði okkar næsti grunnatvinnuvegur. Hugvitið er endalaust hægt að virkja.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×