Skoðun

Sveigjan­leg þjónusta fyrir fatlað fólk

Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar

Velferðarstefna Reykjavikur er í innleiðingu og ein af lykiláherslum hennar er að þjónusta skuli vera eins einstaklingsmiðuð, heildstæð og sveigjanleg og kostur er. Lögð er áhersla á virðingu fyrir ólíkum einstaklingum og þörfum, sjálfræði og valdeflingu allra til að taka þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Í þessum anda eru einmitt nýjar reglur um stoð og stuðningsþjónustu við fatlað fólk auk þess sem við tökum að sjálfsögðu mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en í honum segir meðal annars að skapa eigi fötluðu fólki skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum.

Samvinna

Helsta breytingin með nýjum reglum felst í því að við leggjum til hliðar gátlista sem gefa umsækjendum stig sem svo ákveða fjölda klukkustunda í stuðning og leggjum í staðin ríka áherslu á samvinnu við umsækjanda um það hvers konar stuðning hann þurfi á að halda. Þessi nálgun er talin geta mætt stuðningsþörfum umsækjenda betur og veitt meiri sveigjanleika og styðja þannig við sjálfstætt og innihaldsríkt líf fatlaðs fólks, á heimili og í tómstundum. Einnig er lögð áhersla á að einfalda alla umsýslu varðandi bæði nýjar umsóknir og samþykktar umsóknir með stafrænum lausnum.

Eyðum óvissu

Í allri baraáttu fyrir auknu fjármagni er það hindrun að það fjármagn sem sveitarfélögum var lofað við yfirfærslu ábyrgðar á þjónustu við fatlað fólk til sveitarfélaga hefur ekki skilað sér að fullu. Það hamlar framþróun og þarna þarf einfaldlega að leysa málin. Ég skora á nýtt þing og nýja ríkisstjórn að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og tryggja að sveitarfélög geti sannarlega staðið undir valdeflandi þjónustu sem gerir fötluðu fólki kleift að geta tekið þátt samfélaginu á eigin forsendum, tekið ákvarðanir og borið ábyrgð í eigin lífi rétt eins og við öll viljum.

Framtíðin

Ljóst er að meta þarf framtíðarfjárþörf vegna stuðnings- og stoðþjónustu. Samhliða samþykkt reglnanna í Reykjavík var fjárheimild velferðarsviðs aukin um 100 milljónir, meðal annars til að vinna á biðlistum og til að bæta við þjónustu á næturna. Mikið held ég samfélag okkar yrði betra ef við sameinuðumst um að setja sjálfsögð réttindi fólks í forgang. Ekki bara betra fyrir það fatlaða fólk sem þá fengi sjálfsagða þjónustu og þeirra nánustu, heldur okkur öll.

Höfundur er formaður Velferðarráðs Reykjavíkur og varaformaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×