Innlent

Lýst eftir vitnum að meintri líkamsárás við pylsuvagninn á Akureyri

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Meint líkamsárás varð nærri pylsuvagninum á Hafnarstræti á Akureyri. 
Meint líkamsárás varð nærri pylsuvagninum á Hafnarstræti á Akureyri.  Vísir/Vilhelm

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lýst eftir vitnum að meintri líkamsárás sem átti sér stað á Hafnarstræti á Akureyri, skammt frá pylsuvagninum, um korter í eitt á aðfaranótt sunnudags.

Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar. Maður á sextugsaldri var á Hafnarstræti að ræða við fjóra menn sem endaði með handalögmálum. Maðurinn lá eftir í götunni eftir atvikið en náði síðan að komast á brott. 

Lögreglan er með upptöku af meintri árás en þar sést meðal annars að nokkrir urðu vitni að atvikinu. Lögreglan óskar eftir að sú vitni hafi samband við sig til að ræða málið. 

Þá er þeir sem hafa upplýsingar um meinta líkamsárás beðnir um að hafa samband við lögregluna í gegn um síma 444-2800, í gegn um tölvupóstfangið [email protected] eða með því að senda einkaskilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×