Skoðun

Ísland: há laun – dýrt að lifa og búa

Drífa Snædal skrifar

Í gær var það staðfest með útgáfu haustskýrslu kjaratölfræðinefndar að sá árangur sem stefnt var að með kjarasamningunum 2019 náðist. Laun hafa hækkað umfram verðlag og lægstu laun hafa hækkað mest. Skilgreint er hversu stór hluti kjarabótanna kom í gegnum styttingu vinnuvikunnar og er það einnig staðfest að hið opinbera leiðir þá vegferð. Eins og við mátti búast er því slegið upp í fjölmiðlum að laun séu mjög há hér á landi og megum við vera stolt af því að hafa náð árangri með sterkri verkalýðshreyfingu. Það verður hins vegar að halda því til haga með sama hætti að það er töluvert dýrara að lifa hér heldur en víðast hvar. Matvöruverð er hærra, húsnæðiskostnaður sömuleiðis og aðrir þættir sem nauðsynlegir eru til að njóta lífsins. Það er því töluverð einföldun að segja bara frá launum en ekki útgjöldum. Eftir stendur að fjöldi fólks á vinnumarkaði á erfitt með að ná endum saman og vegur húsnæðiskostnaður þar einna þyngst. Það mun skipta öllu máli í aðdraganda kjaraviðræðna á næsta ári til hvaða aðgerða ný ríkisstjórn grípur til með það að markmiði að lækka húsnæðiskostnað og auka húsnæðisöryggi. Verkalýðshreyfingin mun ekki liggja á liði sínu í þeim efnum.

Versta birtingarmynd erfiðs húsnæðismarkaðar er búseta í óöruggu atvinnuhúsnæði. Það er húsnæði sem er ekki samþykkt íbúðarhúsnæði, öryggismál geta verið í lamasessi og aðbúnaður ekki mannsæmandi. Það er því fagnaðarefni að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Alþýðusamband Íslands hafa tekið höndum saman um að kortleggja þessa búsetu með það að markmiði að tryggja öryggi fólks sem býr í atvinnuhúsnæði. Ætlunin er að gera þetta svo um allt land. Ástæða þess að Alþýðusambandið leggur mikla vinnu í þetta verkefni er að þarna eru félagar í verkalýðsfélögum sem búa við óviðunandi aðstæður og við viljum fylgja því eftir að úr verði bætt. Við leggjum meðal annars til eftirlitsfulltrúa sem eru sérþjálfaðir í að ná sambandi við fólk og byggja upp traust. Sérstök áhersla er á tryggja öryggi fólks þar sem það er, en alls ekki að ógna húsnæðis- eða atvinnuöryggi þess.

Þótt ýmsir vilji draga úr eftirliti og oft á forsendum sem eru ekki verjandi, þá er það hluti af gangverki okkar. Eftirlit stéttarfélaganna hefur til að mynda bjargað fjölda fólks úr óviðunandi aðstæðum, aukið möguleika til að fá kjör leiðrétt og aðbúnað bættan. Ekki síst veitir eftirlitið atvinnurekendum aðhald og á því er svo sannarlega oft þörf.

Góð helgi,

Drífa

Höfundur er forseti ASÍ




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×