Skoðun

Sam­vinna formanns og vara­for­manns - sam­eigin­legar á­skoranir

Guðný Maja Riba skrifar

Af hverju ég - Mun eitthvað breytast með tilkomu minni? 

Já, ég treysti mér til þess að svara þessari spurningu játandi. Mig langar að sjá nýjar áherslur innan sambandsins og að ungir kennarar fái tækifæri að koma snemma að skipulagi og stjórnun, til að sýn og áherslur verði í takt við þau nýju viðmið sem þróast með endurnýjun stéttarinnar. 

Varaformaður þarf einnig að hafa sterka sýn og óbilandi trú á þeim verkefnum sem hann vinnur að. Hann þarf að þekkja styrkleika og veikleika menntamála á öllum skólastigum landsins, þora að segja hlutina eins og þeir eru í raun og veru. Eins þarf varaformaður að vera óhræddur við að takast á við krefjandi verkefni og vera trúr sínum félagsmönnum þvert á öll skólastig – búi yfir óþreytandi elju og metnaði að gera betur. Ég get lofað því að þessum kostum er ég gædd og tel þekkingu mína og reynslu á málefnum skólanna mikla. 

Mikilvægt er að saman fari reynsla skólastjórnenda og kennara í forystu sambandsins. 

Ég tel afar mikilvægt að varaformaður hafi innsýn á þeim vanda sem kennarar standa frammi fyrir á gólfinu í sínum daglegu störfum, þekki vel þær áskoranir sem kennari tekst á við og þá fjölmörgu þætti sem við kennarar þurfum að leysa úr á hverjum degi. Geti leitt þá umræðu um þær bjargir sem þarf til að spyrna við því gríðarlegu álagi sem margir kennara þurfa að starfa við. 

Vissulega gætu margir hugsað að vænlegast sé að varaformaður sé af öðru skólastigi en grunnskóla því að ný kjörin formaður kemur úr grunnskólanum. Það er ekki síður mikilvægt að varaformaður geti unnið náið með formanni og sé framsækin og láti verkin tala – standi á sínu og hafi háleit markmið fyrir alla félagsmenn Kennarasambands Íslands. Ef varaformaður býr yfir þessum eiginleikum skiptir ekki máli af hvaða skólastigi hann kemur. Ég get fullvissað ykkur um að ég bý yfir þessum eiginleikum. 

Ég hef það sem þarf til að leiða öfluga fylkingu ásamt nýjum formanni - ég treysti mér að vinna í þágu allra félagsmanna og tala máli allra – alltaf, alla daga! 

Ég heiti því að leggja mig alla fram og gera mitt besta. 

Með virðingu og von um þinn stuðning, 

Guðný Maja Riba

Höfundur sækist eftir að verða varaformaður Kennarasambands Íslands. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×