Skoðun

Losað um spenni­treyjuna

Guðmundur Ari Sigurjónsson, Karl Pétur Jónsson og Sigurþóra Bergsdóttir skrifa

Í morgun fór fram seinni umræða um fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2022. Samkvæmt áætluninni var ráð gert fyrir 5 milljón króna afgangi af rekstri bæjarins á árinu.

Á kjörtímabilinu hefur rekstur Seltjarnarnessbæjar verið í spennitreyju peningaleysis. Uppsafnaður halli af rekstri bæjarsjóðs á tímabilinu er yfir 700 milljónir. Gífurleg orka kjörinna fulltrúa, stjórnenda og starfsfólks hefur farið í að skera niður kostnað og orðið vel ágengt. Á sama tíma hefur ánægja bæjarbúa með þjónustu bæjarins hrapað.

Fjárhagsáætlanir bæjarins á árabilinu 2015-2020 hafa að jafnaði staðist illa. Frá 2015 hefur raunafkoman verið að meðaltali 204 milljónum lakari en ráð var fyrir gert í áætlunum.

Ýmsar áskoranir standa fyrir dyrum. Órói á vinnumarkaði ber þar hæst, en einnig liggur fyrir að vextir muni hækka, og að veiran skæða sýnir engan bilbug. Það var því heldur ólíklegt að sá fimm milljón króna afgangur sem ráðgerður var myndi standast.

Á samráðsfundi minnihlutans í bæjarstjórn ákváðum við þrjú að leggja fram tillögu um hækkun útsvars í bæjarfélaginu. Slíkt er ekki gert af neinni léttúð. En þegar við blasir að rekstur sveitarfélagsins hefur verið ósjálfbær í heilt kjörtímabil og skuldir hafa hlaðist upp þrátt fyrir aðhaldsaðgerðir, er ekki margt annað í stöðunni en að íbúarnir axli sína ábyrgð.

Nú fór svo að hinn reyndi sveitarstjórnarmaður Bjarni Torfi Álfþórsson komst að sömu niðurstöðu og við og því mun útsvar á Seltjarnarnesi hækka úr 13,7% í 14,09% um áramót.

Þetta þýðir að mánaðarlegt útsvar einstaklings með meðallaun hækkar um tæp þrjú þúsund á mánuði. En þetta þýðir líka að tekjur bæjarins hækka um 96 milljónir á árinu 2022, sem losar ögn um fjárhagslega spennitreyju sveitarfélagsins. Það gerir nýrri bæjarstjórn, sem tekur við í maí næstkomandi aukið svigrúm til að snúa vörn í sókn í þjónustu bæjarins við íbúa.

Af því erum við stolt.

Höfundar eru bæjarfulltrúar Viðreisnar og Samfylkingar á Seltjarnarnesi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×