Skoðun

Að vera treg­gáfaður: Er píkan greindari en pungurinn?

Ágústa Ágústsdóttir skrifar

Eftir að hafa hlustað á viðtal þáttastjórnenda Bítisins á Bylgjunni við Ingu Sæland formann Flokk fólksins í gær, þann 11.1., get ég ekki annað sagt en að ég hafi orðið hálf orðlaus yfir framkomu formannsins. Og þá ekki síður við viðbrögðum fólks eftir á, sem mér fannst einna merkilegust. Inga fór hamförum sem svo oft áður en í þetta sinn virtist hún hafa skilið „orðavalssíuna“ og alla mannasiði eftir heima. Síendurtekið talaði hún bæði ofan í og niður til þáttastjórnenda með því að kalla þá oftar en einu sinni treggáfaða, einfaldlega vegna þess þeir spurðu hana spurninga sem henni virtist finnast fyrir neðan sína virðingu að svara. Ýmislegt fleira lét hún frá sér sem ég ætla svo sem ekki að tíunda hér því það er kannski ekki aðalatriðið að mínu mati.

Á mikilvægum merkistímum þar sem konur hafa sett fótinn niður og sagt „hingað og ekki lengra, nú segjum við frá“ og rutt af stað breytingum í þjóðfélaginu, bæði hugarfarslega og í verki sem hefur krafist hugrekkis, staðfestu og mótbyrs, sem ég hef sjálf tekið þátt í með því að stíga fram og segja frá, er mikilvægt að geta speglað hlutina svo menn tapi ekki áttum.

Meðan á svívirðingum og niðurtali Ingu stóð, virtust þáttastjórnendur taka þessu létt, hlógu mikið og kölluðu þetta hina bestu skemmtun. Kannski fannst þeim það í raun og veru. Kannski voru þeir bara að halda andliti þegar þeir spurðu hana hvað væri eiginlega í kaffinu sem hún væri að drekka. Kannski voru þeir bara ekkert að pæla í þessu yfir höfuð. Viðtalið vakti býsna athygli en kommentakerfin virtust frekar samþykkja hegðun þingmannsins en hitt. Sem er einmitt það sem mér finnst merkilegast.

Hvað ef aðstæðurnar í viðtalinu hefðu verið öðruvísi? Hvað ef Inga Sæland hefði verið karlmaður, þáttastjórnendurnir tveir verið kvenmenn og sömu orð verið notuð í þeirra garð? Ég leyfi mér að halda því fram að hin samfélagslegu viðbrögð hefðu orðið töluvert harkalegri.

Spurningarnar sem við þurfum að spyrja okkur að eru þessar. Skiptir máli hvort undir okkur sé píka eða pungur þegar kemur að framkomu, mannasiðum og málefnalegri orðræðu?

Skipta kynfæri máli þegar um er að ræða helvítis dónaskap og dólgshátt?

Höfundur situr í 4. sæti Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.


Tengdar fréttir

Inga skaut fast í ýmsar áttir í fjörugu viðtali

Nýr heilbrigðisráðherra, stjórnvöld, þáttastjórnendur Bítisins á Bylgjunni, fjölmiðlamaðurinn Einar Þorsteinsson og kaffið í Bylgjustúdíóinu á Suðurlandsbraut fengu að heyra það þegar Inga Sæland mætti í viðtal í Bítið í morgun.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×