Lögreglan rannsakar mál skipstjórans á Herjólfi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. janúar 2022 11:00 Lögregla rannsakar málið. Vísir/Vilhelm Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur hafið rannsókn á máli skipstjóra sem hélt áfram að sigla Herjólfi eftir að atvinnuréttindi mannsins runnu út rétt fyrir jól.
Þetta staðfestir Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Vestmanneyjum í samtali við Vísi. RÚV greindi frá málinu á föstudaginn en í frétt Ríkisútvarpsins kom fram að skipstjóri hjá Herjólfi hefði verið lækkaður í tign eftir að athugasemd og kvörtun barst um óeðlileg vinnubrögð af hans hálfu. Í frétt RÚV sagði að atvinnuréttindi mannsins hafi runnið út rétt fyrir jól. Hann hafi hins vegar áfram siglt Herjólfi eftir það, þangað til hann fékk réttindin endurnýjuð, í byrjun janúar. Óheimilt er að leggja skipi úr höfn nema allir skipverjar hafi verið lögskráðir í skiprúm samkvæmt lögum um lögskráningu sjómanna. Ekki má lögskrá sjómenn nema skírteini skipverja, þar með talið skipstjóra, liggi fyrir. Í fréttum RÚV af málinu hefur einnig komið fram að viðkomandi hafi í einhverjum tilvikum skráð nöfn annarra skipstjóra, án þeirra vitundar, þegar hann var að sigla Herjólfi. Lögreglan rannsakar málið eins og fyrr segir, en brot gegn lögum um lögskráningu sjómanna og reglugerðum settum samkvæmt þeim varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
Vestmannaeyjar Samgöngur Lögreglumál Herjólfur Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Sjá meira