Niðurgangsvaldandi sníkjudýr greindist í íslenskum ketti í fyrsta sinn Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2022 10:48 Sníkjudýrið er ekki talið geta dreifst úr köttum í önnur dýr. Þá er vert að taka fram að þessi tiltekni köttur tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Sníkjudýr sem getur valdið krónískum niðurgangi í köttum greindist nýverið í fyrsta sinn í ketti á Íslandi. Ekki er talið að sníkjudýrið geti valdið sýkingum í öðrum dýrum en köttum og er það almennt ekki talið hættulegt fólki.
Sníkjudýr þetta kallast Tritrichomonas foetus en það greindist í saursýni úr ketti með krónískan niðurgang sem var sent á rannsóknarstofuna Finn Pathologist í Bretlandi frá Gæludýraklíníkinni í Reykjavík. Samkvæmt tilkynningu á vef Matvælastofnunar segir að stofnuninni hafi ekki borist áður tilkynning um þetta sníkjudýr hér á landi. Annað afbrigði þessa sama sníkjudýrs valdi fósturláti í kúm snemma á meðgöngu en það afbrigði hafi heldur aldrei greinst á Íslandi. Þá er talið að sníkjudýrið í köttum geti ekki borist í nautgripi. Eitt afbrigði þessa sníkjudýrs til viðbótar kallast Tritrichomonas suis og finnst í svínum. Það hefur heldur aldrei greinst hér á landi en hefur greinst í fólki erlendis.
Dýr Dýraheilbrigði Gæludýr Kettir Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira