Skoðun

Það skiptir máli hver stjórnar

Eva Magnúsdóttir skrifar

Þann 5. febrúar næstkomandi ganga Sjálfstæðismenn að kjörborðinu og velja fólk sem stillt verður upp á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Það eru forréttindi fyrir flokkinn að geta valið úr svo miklum fjölda af hæfileikaríku fólki sem vill vinna fyrir bæinn okkar. Ein þeirra er Kolbrún Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi til margra ára, lýðheilsufræðingur með menntun í stjórnun menningarstofnana, kennari, núverandi formaður fræðslunefndar og fyrrverandi formaður fjölskyldunefndar. Þessi mikla menntun og reynsla í farteskinu gerir Kolbrúnu hæfasta til þess að leiða þann lista sem Sjálfstæðismenn munu tefla fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Auk mikillar og fjölbreyttrar menntunar þá er reynsla af því að takast á við fjölbreytta málaflokka og takast á við stjórnsýsluna mikilvæg þeim sem ætla sér að vera leiðandi í bæjarfélagi eins og Mossfellsbæ.

Skýr framtíðarsýn, metnaður, eldmóður og rótgróin væntumþykja fyrir bænum eru hennar leiðarljós og ég held að mörg okkar deili þeirri framtíðarsýn sem Kolbrún hefur teiknað upp fyrir Mosfellsbæ. Eða svo notuð séu hennar orð: „Framtíðartækifærin felast í sterkri tengingu við náttúruna og er Mosfellsbær þar fremstur í flokki sveitarfélaga hvað þau tækifæri varðar. Tækifæri í sjálfbærri matvælaframleiðslu og grænni nýsköpun er hér allt í kringum okkur og er draumurinn að í Mosfellssbæ verði byggður upp öflugur bændamarkaður í bland við matarupplifun í jafnvel mathöll sem enga á sér líka. Matarupplifun í bland við menningu og listir er eftirsóknarverð upplifun fyrir alla fjölskylduna." Þetta er framtíð sem ég vil fyrir Mosfellsbæ. Ef við sem trúum því að Mosfellsbær sé bærinn þar sem við ætlum að ala upp börnin okkar og byggja upp okkar líf í sátt og samlyndi við náttúruna þá er Kolbrún rétti kosturinn.

Þegar fólk sem hefur lengi verið við stjórnvölinn ákveður að hætta skapast rými fyrir aðra að komast að. Þegar Haraldur ákvað að bjóða sig ekki fram sem oddvita flokksins eftir að hafa leitt Mosfellsbæ í gegnum gríðarlega stækkun, þróun og uppbyggingu, skapaðist svigrúm fyrir aðra að bjóða sig fram til verksins. Framboð til oddvita flokkisns þýðir þó alls ekki að við séum að velja okkur bæjarstjóra, þvert á móti, í þessu prófkjöri erum við að velja um hver verður oddviti Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Hvort sigurvegarinn verður bæjarstjóraefni er síðari tíma ákvörðun alls listans og kallar fyrst og fremst á að Sjálfstæðismenn sigri kosningarnar í vor.

Ég hvet alla Sjálfstæðismenn til þess að taka þátt í prófkjörinu og velja þann aðila til forystu sem hefur mikla reynslu og hefur tekið þátt í að byggja upp Mosfellsbæ frá 2010 með ábyrga fjármálastjórn að leiðarljósi. Kolbrún hefur skýra framtíðarsýn og vill byggja upp græna atvinnuvegi í Mosfellsbæ þar sem náttúran nær að blómstra í sátt og samlyndi við íbúana. Hún hefur tekið þátt í að byggja upp skóla og tómstundir þar sem börnin okkar njóta bestu menntunar og tómstunda sem völ er á. Kolbrún er leiðtogi framtíðarinnar fyrir Mosfellssbæ, á því leikur enginn vafi.

Höfundur er ráðgjafi og fyrrverandi formaður fræðslunefndar og varabæjarfulltrúi í Mosfellsbæ.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×