Skoðun

Ljós­myndara­fé­lag Ís­lands 95 ára

Laufey Ósk Magnúsdóttir skrifar

Með tilkomu stafrænnar tækni í ljósmyndun í upphafi aldar sáu allir fyrir sér miklar breytingar framundan í faginu þó enginn hafi vitað hverjar þær breytingar yrðu nákvæmlega. Eins og fylgir öllum breytingum komu upp áhyggjuraddir. Yrðu ljósmyndir mögulega minna virði þegar allir geta tekið myndir? Mun tæknin taka myndirnar fyrir okkur? Er þetta möguleg ógn við ljósmyndun sem starf? Í dag vitum við að tæknin er einmitt bara það, tæki fyrir okkur ljósmyndara að vinna með. Tækni til að einfalda okkur vinnuna að einhverju leyti sem gefur okkur enn meira rými til að skapa. Eða eins og fyrrum formaður Ljósmyndarafélags Íslands orðaði svo flott í viðtali um árið; það að eiga fiðlu gerir okkur ekki að fiðluleikara.

Notkun myndefnis hefur á heildina litið aldrei verið meiri en í dag sem kallar á mikla sköpun myndefnis sömuleiðis. Netmiðlar byggja að mjög miklu leyti á myndum og myndböndum. Sem betur fer eru enn fyrirtæki og einstaklingar sem vilja vanda til verka og ráða ljósmyndara í verkefnin. Skilin milli ljósmyndunar og myndbandagerðar verða sífellt óljósari og margir fagmenn eru farnir að gera hvort tveggja.

Allir hafa tæknina, sem setur á okkur ljósmyndara auknar kröfur til að vera enn betri og að skera okkur úr, jafnvel sérhæfa okkur. Flestir ljósmyndarar hafa tekið þessari áskorun fagnandi. Úr hefur orðið að við hér á Íslandi eigum frábært fagfólk sem ber að hampa. Ljósmyndasýning er ein leið til þess.

Ljósmyndarafélag Íslands varð 95 ára nýlega og einn hluti af hátíðarhöldum af tilefninu er samnorræn ljósmyndasýning í Hörpu sem opnar föstudaginn 18. febrúar kl. 16.30. Sýningin samanstendur af verðlaunamyndum frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Sýningin mun standa til 3. mars og er öllum opin.

Við sama tilefni verða veitt verðlaun fyrir íslensku myndirnar. Ljósmyndarar, ýmist íslenskir eða búsettir á Íslandi, sendu inn myndir í fjóra flokka og var frábær þátttaka. Ljósmyndarafélag Íslands fékk þrjá erlenda dómara sem lögðu mat á innsendar myndir. Stigahæsta mynd í hverjum flokki fær verðlaun. Fimm aðrar stigahæstu myndir óháð flokkum komust svo inn á sýninguna. Dómararnir þrír eru Tony Sweet frá Bandaríkjunum, Gabe McClintock frá Kanada og Line Loholt frá Noregi. Útkoman er frábær sýning sem er þverskurður af ljósmyndun á Íslandi síðustu misserin.

Framtíðin er björt í ljósmyndun og mörg verkefni framundan fyrir okkur sem fagfólk. Til dæmis að auka samheldni í stéttinni og auðvelda nýliðun. Stórt og öflugt félag starfandi ljósmyndara sem vinnur vel með yfirvöldum og skólum tel ég vera lykilatriði í því.

Höfundur er ljósmyndari og formaður Ljósmyndarafélags Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×