Eðvarð er í dag með þykkt og fallegt hár Stefán Árni Pálsson skrifar 18. febrúar 2022 10:31 Eðvarð segist vera mjög sáttur með nýja hárið. Eðvarð Gíslason hefur verið með skalla frá því hann var tvítugur, eins og svo margir karlmenn lenda í.
Hann var ekkert ósáttur við það en hann langaði að prófa að fá þykkt og mikið hár. Og nú er hann kominn með nýtt hár sett var með byltingarkenndri aðferð þar sem hann þarf ekki að hafa áhyggjur af hárinu hvorki í sundi eða sturtunni. Vala Matt fór fékk að hitta Eðvarð eftir meðferðina í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. „Ég var ekkert svo ósáttur að vera ekki með neitt hár en það er gaman að vera með hár aftur,“ segir Eðvarð en um er að ræða hárkollu sem Eðvarð fékk um miðjan desember. „Ég varð að fara í allskonar próf til að athuga hvort ég sé með ofnæmi fyrir líminu og fleira. Þetta er mikið ferli. Ég er mjög sáttur. Það var mjög mismunandi hvernig fólk í kringum mig brást við og flest allir voru mjög hissa þegar þau sáu mig. Ég hef verið spurður hvort ég hafi farið í ígræðslu og margt annað,“ segir Eðvarð sem er í dag að læra alveg upp á nýtt að nota allskonar hárvörur. „Ég get farið í sund með þetta hár og má bara lifa algjörlega eðlilegu lífi. Ég fer bara í sturtu og allt. Þetta er mikil breyting og ákveðin frelsun.“ Sigríður Margrét Einarsdóttir hárgreiðslumeistari sýnir í innslaginu hvernig sé hægt að setja hártoppa á konur bæði til þykkingar og lengingar. Einnig fór Vala og hitti unga námskonu Borghildi Gunnarsdóttur sem notar hárkollur til tilbreytingar dags daglega og breytir þannig um útlit á einfaldan og skemmtilegan hátt. En hárkollur eru mikið í tísku hjá ungum konum í dag. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Mest lesið Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Lífið Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Bíó og sjónvarp Húðrútína Birtu Abiba Lífið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Lífið Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig Tónlist Frægar í fantaformi Lífið Fleiri fréttir Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Húðrútína Birtu Abiba Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Inga Sæland vill komast í fjármálaráðuneytið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Hefndi sín með því að missa meydóminn Spurt var um fyrirbæri sem Tommi á Búllunni framkvæmdi fyrst hér á landi Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“ Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Draumaherbergi hjá fimmtugri og fabjúlöss Kynbomba og reynsluboltar í Melodifestivalen Söfnunarþáttur UNICEF í beinni útsendingu á þremur stöðvum í einu Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lyftu barninu upp eins og hann væri Simbi Lára og lyfjaprinsinn opinbera kynið Tilfinningar þvælast fyrir tiltektinni Frægar í fantaformi Ofurpar úr tennisheiminum á Íslandi Gervigreindin stýrði ferðinni Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Gervigreindin heillar Ólaf Ragnar upp úr skónum Reykti pabba sinn Er ESB og Sameinuðu þjóðunum stjórnað af valdaklíku? Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Sér lífið í nýju ljósi eftir móðurmissinn Sjá meira