Skoðun

Orra Björnsson til forystu í Hafnarfirði

Svavar Halldórsson skrifar

Stundum er sagt að því minni sem samfélögin eru, þeim mun meira máli skipti hver einstaklingur. Að mati undirritaðs er mikill sannleikur fólgin í þessari gömlu speki. Við Hafnfirðingar erum svo heppin að hafa átt fjölmarga einstaklinga sem skarað hafa fram úr á mörgum sviðum; íþróttum, viðskiptum, kvikmyndagerð, tónlist, mótun skólastefnu, gríni og ýmsu fleiru. Þetta fólk hefur auðgað samfélagið okkar með framlögum sínum. Við hin erum stolt af þeim.

Öflugur og afkastamikill

Einn þessara einstaklinga er Orri Björnsson, forstjóri líftæknifyrirtækisins Algalífs. Hann hefur farsællega leitt uppbyggingu þessa öfluga fyrirtækis sem ratað hefur í fréttir að undanförnu vegna fjögurra milljarða króna stækkunar sem komin er vel á veg og skapar fjölda starfa í miðri Kóvíd kreppu. Atorka og frumkvöðlakraftur Orra hefur drifið verkefnið áfram og nú er svo komið að fyrirtækið er metið á 25 milljarða. Orri býr yfir þeim mikilvæga eiginleika að afkasta meiru eftir því sem álagið vex, en Orri hefur innt með sóma af hendi störf sín ýmsum nefndum, stjórnum og ráðum fyrir Hafnarfjörð, á sama tíma og hann hefur leitt uppbyggingu Algalífs.

Alþjóðlegt sjónarhorn

Leiðir okkar Orra lágu fyrst saman í gegnum ungliðastarf Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Vinskapur okkar hefur haldist æ síðan þótt hann hafi búið og starfað í Búlgaríu, Kenía og Noregi, þar sem hann leiddi meðal annars ýmis verkefni í lyfja- og líftæknigeirunum. Hann var einnig um tíma sérstakur ráðgjafi á vegum Sameinuðu þjóðanna. Orri er heill og sannur, heiðarlegur, sannsögull og fylginn sér. Svoleiðis fólk er gott að velja til trúnaðarstarfa fyrir samfélagið. Þess vegna hefur hann valist til til forystu alþjóðlegra verkefna sem hafa skilað honum víðsýni sem nýst getur Hafnfirðingum.

Þekking úr atvinnulífinu

Reynsla Orra Björnssonar úr viðskiptum og víðtæk tengsl við verðmætaskapandi nýsköpunarfyrirtæki hafa verið honum haldgott veganesti í þeim verkefnum sem hann hefur tekið að sér fyrir samfélagið sem einn af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í mörg. Áherslur hans varðandi ráðdeildarsemi og skynsamlega meðferð fjármuna hafa átt sinn þátt í því að tekist hefur að byggja upp góða þjónustu við bæjarbúa um leið og gætt er að fjárhagslegum stoðum sveitarfélagsins.

Skilningur á íþróttum og æskulýðsstarfi

Bakgrunnur hans sem afreksíþróttamaður veitir honum dýrmæta innsýn og hann hefur sýnt það í verki að hann styður heilshugar uppbyggingu á öflugu íþrótta-, menningar- og skólastarfi í bænum. Í gegnum áralanga vináttu veit ég líka að Orri er maður orð sinna. Orri Björnsson er einn af þessum einstaklingum sem skipta sköpum í samfélaginu.

Slíkt fólk er afar mikilvægt fyrir okkur Hafnfirðinga Ég hvet því alla Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði til að setja Orra í 2. sætið í prófkjörinu um helgina.

Höfundur er sérfræðingur í matarmenningu, stefnumótun og markaðsmálum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×