Skoðun

Tals­maður mann­réttinda­brota

Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Finnur Thorlacius Eiríksson hefur tekið að sér að gerast helsti talsmaður síonismans og Ísraels á Íslandi. Hann fer fyrir samtökum sem nefnast Með Ísrael fyrir friði og er mjög iðinn við greinaskrif um málefni Ísraels. Finnur er dálítið skondinn greinarhöfundur þar sem hann reynir að gefa skrifum sínum virðulegan blæ og vitnar ótt og títt í greinar sem hafa birst áður um málin sem eru honum hugfanginn. Í nýjustu grein sinni vísar hann til sex greina sem eiga að sýna hversu vandlega greinar hans eru studdar tilvísunum. En glansinn á fræðimennskunni hjá Finni minnkar ögn þegar það kemur í ljós að af sex tilvísunum eru fimm tilvísanir í hans eigin skrif. Hann er þannig búinn að koma sér upp hringrás sem gerir honum lífið léttara við að verja glæpsamlegt framferði Ísraelshers.

Nýjasta grein Finns (Vísir 14. 3. 22) byggir á mislestri hans á bréfi sem Félagið Ísland - Palestína sendi Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra RÚV.

Bréfið til útvarpsstjóra fjallar um mismunandi afstöðu RÚV gagnvart mannréttindabrotum Pútíns og Ísraelsstjórnar. Í bréfinu eru lagðar fram nokkrar spurningar í þeim tilgangi að fá svör við því hversu lengi RÚV umber voðaverk og mannréttindabrot Ísraels en bregst snarlega við voðaverkum Rússlands í Úkraínu.

Finnur viðurkennir ekki að einhverjir hnökrar séu á framferði Ísraelsríkis og tekur afstöðu Sameinuðu þjóðanna og mannréttindasamtakanna Amnesty International, Human Rights Watch og B'Tselem ekki alvarlega. Í augum Finns bera Palestínumenn ábyrgð á átökunum við síonistana, þeir vilja ekki lúta herstjórn og krefjast mannréttinda sem Finnur telur sjálfsögð þegar hann sjálfur á í hlut. Það er höfuðsök hjá samtökunum Með friði fyrir Ísrael að krefjast mannréttinda.

Finnur telur sig hafa fundið snöggan blett hjá Palestínuvinum þegar „formaður Félagsins Íslands-Palestínu ákvað nýlega að færa athyglina frá Úkraínu og að sínu helsta hugðarefni“ og „má spyrja hvort það sé ekki frekar óviðeigandi að hann notfæri sér neyð Úkraínumanna sem stökkpall út í algjörlega óskylt málefnifyrir sín sjónarmið.“

Tilgangur bréfsins til útvarpsstjóra er eins og fyrr segir að fá skýringar hjá RÚV vegna mismunandi afstöðu til mannréttindabrota Ísraels og Rússlands. Málefnið er eitt og hið sama, mannréttindi eiga að gilda gagnvart öllum, en ekki bara sumum - jafnvel þótt Finni finnist það óviðeigandi.

Höfundur er formaður Félagsins Ísland-Palestína. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×