Skoðun

Fæðu- og af­komu­öryggi Ís­lands

Eldur Ólafsson skrifar

Árið 2021 var rituð skýrsla fyrir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið sem heitir „Fæðuöryggi á Íslandi“ og var unnin af Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar kemur fram að eiginlegt fæðuöryggi Íslendinga sé háð fjórum meginforsendum:

  • að auðlindir til framleiðslunnar séu til staðar, s.s. fiskistofnar og land til ræktunar

  • að þekking á framleiðslu og tæki til framleiðslu séu til staðar

  • að aðgengi að aðföngum sé tryggt fyrir framleiðslu sem mætir þörfum þjóðarinnar, s.s. olíu, áburði og fóðri

  • að birgðir séu til af þeim fæðutegundum sem þjóðin þarfnast en sem innlend matvælaframleiðsla getur ekki tryggt eða slík framleiðsla hér heima verði efld

Að mati höfundar má skipta fæðuörygginu í tvennt. Annars vegar eru það lengri tíma fjárfestingar og eignir en það eru t.d. landbúnaðartæki, fjárhús, fjós, hlöður, fiskiskip, vinnslur, landbúnaðarland og fiskimiðin. Hins vegar er það hrávara sem við þurfum til að knýja þessar fjárfestingar og eignir áfram og auka arðsemi lands en helstu hrávörurnar eru olía, fóður (korn og gras), áburður og útsæði.

Samkvæmt skýrslunni Fæðuöryggi á Íslandi þá flytjum við inn frá Evrópu árlega um það bil:

  • 50.000 tonn af áburði
  • 25.000 tonn af korni til manneldis, bjór, brauð og pasta
  • 150.000 tonn af korni fyrir svínaræktun, kjúklingaræktun og fiskeldi
  • 500.000 lítra af olíu (fyrir allt nema flugið)

    • Um 150.000 lítrar fara á skip
    • Um 350.000 lítrar fara á bifreiðar
    • Einungis 15.000 lítrar eru nýttir til að knýja landbúnaðartæki

Ef þessu nýtur ekki við, þá hefur það afleiðingar, nánar tiltekið mjólkurframleiðslan minnkar, við getum ekki fiskað, kjöt- og grænmetisframleiðsla rýrnar og minnkar, jarðvegurinn er ekki jafn frjósamur o.s.frv.

Eftir því sem höfundur best veit þá er Ísland einungis með skammtímabirgðir af þessari hrávöru, þ.e. um 3 mánaða birgðir af olíu og áburður og útsæði er pantað í takmörkuðu magni til skemmri tíma. Þetta hefur líka áhrif á hagstjórn en vegna stórfelldra hækkana á þessum hrávörum er viðbúið að matarverð á Íslandi hækki töluvert.

Því mætti skoða til skemmri tíma hvort viðeigandi aðilar á markaði ættu að tryggja sér þessar hrávörur. Hægt er að geyma áburð og korn svo árum skiptir í upphituðum og rakastýrðum geymslum, sem og olíu á tönkum. Bændur og útgerðir geta leitað eftir fjármögnun til kaupa og birgðahalds á olíu, áburði, korni og annarri nauðsynlegri hrávöru.

Íslendingar þurfa auka orkuframleiðslu um 1.000 MW til að verða sjálfum sér nægir um orku og ef byggð eru orkuver sem framleiða 100 MW á ári þá er hægt að ná þessu á 10 árum. Orkuskiptin snúast um að nota orkugjafa eins og jarðhita til að halda korni og áburði þurru, búa til rafeldsneyti á landbúnaðartækin sem og skipin okkar í stað olíu.

Ef þetta er ekki gert þá eru Íslendingar háðir ríkjum sem ekki hafa sömu gildi og við Íslendingar og eru því okkur hættuleg. Látum hendur standa fram úr ermum og klárum orkuskiptin.

Höfundur er jarðfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×