Skoðun

Fórnar­lömb inn­byrðis­á­taka verka­lýðs­hreyfingarinnar eru lág­launa­fólk

Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar

Kjarasamningar eru framundan á miklum óvissutímum. Samstaða innan verkalýðshreyfingarinnar er forsenda þess að hægt sé að ná árangri og hana má ekki brjóta upp nú þegar við stöndum frammi fyrir breyttri heimsmynd, bæði í kjölfar heimsfaraldurs og vegna stríðs í Evrópu sem mun senn hafa mikil áhrif á lífskjör fólks um allan heim.

Samstaða er best til árangurs

Hugur okkar hvílir hjá fórnarlömbum yfirstandandi stríðs í Úkraínu. Leið alþjóðasamfélagsins til að reyna að afstýra frekari átökum er að sýna breiða samstöðu gegn fautaskap og ofbeldi Pútíns og hefur því verið gripið til hörðustu efnahagsaðgerða sem lagðar hafa verið á nokkurt ríki. Munu þær vonandi eiga þátt í að knýja fram friðsamlega lausn á innrás Rússlands í Úkraínu. Samstaðan er hér lykilatriði. Í verkalýðshreyfingunni bindumst við einnig samtökum til að verja lífskjör og réttindi þeirra sem veikast standa og náum árangri með breiðri samstöðu.

Órofa samstaða fyrir láglaunafólk

Verkalýðshreyfingin er stærsta fjöldahreyfing landsins og þó hér spretti upp ólík sjónarmið og deilur höfum við öll jöfnuð og réttlæti að leiðarljósi. Forsendan fyrir því að við náum árangri í baráttu okkar fyrir mannsæmandi launum og réttindum þeirra sem veikast standa er að við stöndum saman. Fyrstu fórnarlömb innbyrðis átaka í verkalýðshreyfingunni eru láglaunafólkið, fólkið sem okkur ber umfram allt að verja. Nú er því kominn tími til að við leitum sátta og einbeitum okkur að sameiginlegu markmiði. Órofa samstaða er mikilvægust fyrir þann allt of stóra hóp láglaunafólks sem getur ekki lifað af laununum sínum.

Við í Starfsgreinasambandinu erum rödd láglaunafólks í samfélaginu, innan verkalýðshreyfingarinnar og gagnvart stjórnvöldum. Við höfum tekið harða slagi, til að mynda fyrir því að semja um krónutöluhækkanir og ná sátt um að hinir lægst launuðu njóti launahækkana umfram aðra, og höfum sannarlega náð árangri í okkar baráttu. Að sama skapi gerum við okkur grein fyrir að til að árangur náist til lengri tíma þá þarf að ríkja traust á milli samningsaðila um að við séum heil í okkar störfum.

Kæru félagar í verkalýðshreyfingunni, styrkur okkar er fjöldinn, fjölbreytileikinn, ólíkar áherslur og lýðræðislegt samtal. Nú er tíminn til þess að standa saman og sýna styrk okkar launafólks og samstöðumátt verkalýðshreyfingarinnar.

Aðeins sameinuð verkalýðshreyfingin getur knúið fram breytingar. Samstaða mun skila okkur lausnum.

Höfundur er formaður Bárunnar stéttarfélags á Selfossi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×