Skoðun

Hlut­verk leik­skólans er að tryggja börnum gæða­menntun

Jónína Hauksdóttir skrifar

Nú þegar styttist í sveitarstjórnarkosningar setja frambjóðendur ýmissa flokka fram hugmyndir sem snúa sérstaklega að leikskólastiginu, oft að því er virðist án þess að hafa nægjanlega þekkingu á þessum málaflokki. Meðal annars heyrist að brúa verði bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla með því að taka inn yngri og yngri börn.

Leikskólastigið hefur þróast hratt sem skólastig og í raun of hratt til þess að geta staðið almennilega undir sér. Ákvarðanir kjörinna fulltrúa um að bjóða sífellt yngri börnum skóladvöl án þess hugsa málin fyllilega til enda hefur aukið á vandann, því fleiri börn kalla á fleiri kennara. Ráðast þarf að rót vandans sem er að fjölga verður leikskólakennurum í starfi áður en hægt er að bjóða yngri börnum skóladvöl. Frekari stækkun skólastigsins núna mun alltaf verða á kostnað gæða í skólastarfi því fagmennska og þekking kennara á þroska og námi barna er sá þáttur sem skapar þau gæði sem börn eiga rétt á.

Önnur hugmynd sem kallar á stækkun leikskólastigsins kom fram á dögunum. Að Landspítalinn opni leikskóla sem býður upp á opnunartíma um kvöld og helgar til að þjóna starfsfólki spítalans. Sú hugmynd felur í sér þá hugsun að leikskólar séu til staðar til að þjóna atvinnulífinu. Ef stofnanir eða fyrirtæki vilja eða ætla sér að bjóða sínu starfsfólki upp á vistun fyrir börn sín utan hefðbundins starfstíma leikskóla verður að kalla slíka þjónustu eitthvað allt annað en leikskóla.

Samkvæmt lögum um leikskóla snýr hlutverk hans að börnum og felst í að tryggja þeim gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska undir handleiðslu leikskólakennara. Er það gert í gegnum leik sem er námsleið barna og kennsluaðferð kennara á leikskólastiginu.

Ágætu frambjóðendur, setjið krafta ykkar og orku í að styðja við leikskólastigið með raunhæfum leiðum svo leikskólar geti sinnt sínum lögbundnu skyldum á sem bestan hátt með hagsmuni barna í fyrirrúmi. Margt er hægt að gera til að bæta námsaðstæður barna og um leið starfsaðstæður kennara.

Kennarasamband Íslands og aðildarfélög þess eru reiðubúin til skrafs og ráðagerða þegar kemur að raunhæfum hugmyndum sem snúa að öllum skólastigum og skólagerðum. Nýtið ykkur okkar þekkingu því öll viljum við hag barna landsins sem bestan.

Höfundur er varaformaður Kennarasambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×