Skoðun

Hafnar­fjörður getur orðið ríkasta sveitar­fé­lag landsins

Jón Ingi Hákonarson skrifar

Tækifærin eru oft nær en okkur grunar. Hafnarfjörður hefur tækifæri til þess að koma sér í öfundsverða stöðu á tveimur áratugum. Óslípaði demantur okkar Hafnfirðinga eru Óttastaðir handan Álversins í Straumsvík. Skip verða sífellt stærri og hafnir á Íslandi eru ekki tilbúnar til þess að þjónusta djúprist risaskip. Einn hagkvæmasti kostur stórskipahafnar fyrir Suðvesturhornið er að Óttastöðum, handan Straums­víkur.

Besta leiðin til að spá fyrir um framtíðina er að skapa hana. Við í Viðreisn höfum horft til þeirra tækifæra sem eru að myndast með stækkun flutningaskipa og hagræðingar sem því fylgir. Í náinni framtíð mun SV hornið þurfa að fara í staðarval vegna stórskipahafnar, en hafnir landsins eru að verða of litlar til að þjónusta stærri flutningaskip. Einn vænlegasti kosturinn eru Óttastaðir. Þar er dýpið nægjanlegt, efni til að byggja hafnargarð er til staðar og plássið sem losnar, ef álverið kýs að fara,myndi nýtast vel sem geymslusvæði tengt hafnarstarfsemi. Við gætum rafvætt höfnina og gert hana þá umhverfisvænustu á byggðu bóli. Við þetta færist töluvert af hafnarstarfsemi frá núverandi hafnarsvæði og því þarf að huga að breyttri notkun á því frábæra landsvæði í hjarta Hafnarfjarðar, mögulega myndi þar rísa glæsilegasta bryggjuhverfi landsins. Önnur tækifæri á sviði nýsköpunar í sjávarútvegi, líftækni og grænum lausnum eru handan við hornið.

Svona risaverkefni gerast þó ekki að sjálfu sér. Ef þetta tækifæri á að raungerast, öllum landsmönnum til hagsbóta, þurfa bæjaryfirvöld að taka frumkvæði í málinu, hafa skýra afstöðu og róa að því öllum árum að gera aðstæður hér í bænum þannig að erfitt verði að horfa framhjá okkur þegar ákvarðanir verða teknar. Viðreisn óskaði eftir því í júní 2019 að Hafnarfjarðarbær myndi taka fyrsta skrefið og gera hagræna úttekt á áhrifum slíkrar framkvæmdar því það er ljóst að fjárhagslegur og efnahagslegur ávinningur verður talinn í milljörðum á ári. Ekkert bólar á þessari úttekt sem sýnir best afstöðu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks til þessa tækifæris. Fulltrúar Viðreisnar hafa einir flokka haft samband við fulltrúa eigenda Óttastaða og átt óformlegar samræður um þá möguleika sem staðsetningin býður upp á. Nú þegar eru aðilar að stefna á stórskipahöfn við Þorlákshöfn, það sýnir að samkeppnin um þessa mikilvægu innviðauppbyggingu er hafin.

Ákvarðanir dagsins í dag móta samkeppnishæfni Hafnarfjarðar í framtíðinni. Ráð er ekki nema í tíma sé tekið. Eitt af hlutverkum bæjarstjórnar er að hugsa langt inn í framtíðina, greina tækifæri og gera sveitarfélagið eins vel í stakk búið og hægt er til að grípa gæsina þegar hún gefst. Lykillinn að góðum árangri liggur í undirbúningi.

Það er mikilvægt að hefjast strax handa við þetta verkefni og Hafnarfjörður á að hafa frumkvæði í málinu. Viðreisn mun taka þetta mál föstum tökum á næsta kjörtímabili og ég vona að sem flestir Hafnfirðingar sjái möguleikana í þessu einstaka tækifæri.

Meiri framsýni, meiri velmegun, meiri Viðreisn.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×