Skoðun

Er gott að búa í Kópa­vogi fyrir yngstu kyn­slóðina?

Thelma Bergmann Árnadóttir skrifar

Nýbyggingar spretta upp í Kópavogi en ekki leikskólar

Það var fyrir einhverjum árum síðan sem Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogsbæjar, lét þau fleygu orð falla ,,það er gott að búa í Kópavogi''. Vissulega hefur verið að mörgu leyti gott að búa í Kópavogi. Ég velti því samt fyrir mér, er gott að búa í Kópavogi fyrir ung börn?

Ástæðan fyrir þessum vangaveltum er sú að þegar kemur að leikskólaþjónustu í Kópavogsbæ þá virðist ekki vera lagður neinn sérstakur metnaður í skipulag þegar kemur að úthlutun plássa. Ef börn fá pláss þá fá þau í alltof mörgum tilfellum ekki pláss í sínum hverfisleikskóla, og í sumum tilfellum í hinum enda bæjarins. Það hefur í för með sér óþarfa rask í lífi barnsins þegar það er loks flutt i leikskóla í sínu rétta búsetu hverfi. Einnig er ekki öruggt að systkini fái pláss í sama leikskólanum. Að sama skapi virðist það því miður vera svo að ef börnin eru ekki fædd á "réttum tíma" árs, þar að segja, á fyrstu mánuðum hvers árs, þá fá þau alla jafna ekki inngöngu í leikskóla fyrr en að hausti við tveggja ára aldur. M.v hversu hröð uppbygging nýs íbúðahúsnæðis í bænum hefur verið, er orði æ sjaldgæfara að börn komist yfir höfuð inn fyrir tveggja ára aldur.

Margir foreldrar í Kópavogsbæ hafa því þurft að sækja bæði leikskólaþjónustu og dagforeldra fyrir ung börn sín í önnur nærliggjandi bæjarfélög, sem er eðli málsins samkvæmt mjög tímafrekt, meira álag fyrir fjölskyldulífið og síðast en ekki síst óumhverfisvænt. Undirrituð hefur tilheyrt þeim foreldrahópi tvisvar, síðan árið 2018, og fengið pláss hjá dagforeldri alla leið uppí Grafarvogi. Á sama tíma hjá því dagforelri voru tvö önnur börn einnig frá Kópavogsbæ. Semsagt, þrjú af fimm börnum þess dagforeldris í Reykjavík voru búsett í Kópavogi.

Íbúum í Kópavogi hefur fjölgað um tæp 7 þúsund á síðustu 8 árum, á sama tíma hefur bærinn ekki opnað nýjan leikskóla. Það virðist vera sem svo að bærinn reikni ekki með því að börn fylgi nýbyggðum fjölbýlishúsum í bænum sem hafa risið á ógnarhraða síðustu ár. Ástandið varðandi leikskólamál versna því bara og versna.

Getur verið að það sé hreinlega lítill metnaður þegar kemur að leikskólagöngu barna í bæjarfélaginu? Getur verið að það sé ekki gott fyrir ung börn að búa í Kópavogi, og þar af leiðandi ekki gott fyrir ungar fjölskyldur að setjast að í bænum? Það er brýn þörf á áherslubreytingum í þessum efnum. Það þarf að hugsa málin til enda þegar nýar blokkaþyrpingar eru lagðar á teikniborðið. Við aukningu íbúa í bænum þarf viðeigandi þjónusta að fylgja í takt með, svo búsetan sé mannvæn öllum íbúum.

Höfundur skipar 3. sæti á Y-Lista Vina Kópavogs í komandi sveitastjórnarkosningum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×