Skoðun

Lyfti­stöng fyrir í­þrótta- og heilsu­eflandi starf­semi í Garða­bæ

Gunnar Einarsson skrifar

Garðabær er heilsueflandi samfélag frá árinu 2018 en með þátttöku í því verkefni skuldbindur Garðabær sig til að leggja áherslu á að lýðheilsa íbúa sé höfð í fyrirrúmi. Miðgarður, nýtt fjölnota íþróttahús Garðbæinga er risið og æfingar hafnar en húsið er mikil lyftistöng fyrir íþrótta- og heilsueflandi starfsemi í Garðabæ. Það má með sanni segja að húsið eigi eftir að gjörbylta íþróttastarfinu í bænum, sem þó er afar metnaðarfullt fyrir.

Miðgarður er staðsettur í Vetrarmýri og er hluti af þróunarsvæði sem nær m.a. yfir Hnoðraholt, Vetrarmýri, Vífilsstaði og Smalaholt. Við Miðgarð verður samfelld byggð, í Hnoðraholti norðan megin við Miðgarð er gert ráð fyrir nýrri íbúðabyggð sem bætist við þá sem fyrir er á holtinu og næst Reykjanesbraut er gert ráð fyrir verslun, þjónustu og stofnunum sem mynda þjónustukjarna þessa bæjarhluta. Austan við Miðgarð er golfvöllur GKG, skógræktarsvæði við Smalaholt og þaðan er einnig stutt í fallega náttúru okkar Garðbæinga við Vífilsstaðavatn og Heiðmörk þar sem margir íbúar höfuðborgarsvæðisins njóta útivistar á hverjum degi.

Miðgarður gerir okkur kleift að fjölga þátttakendum í íþróttum í Garðabæ sem er afar mikilvægt í stækkandi bæ. Gríðarlegur vöxtur er í bænum og mikill kraftur, og við erum stolt af því að geta mætt þeim vexti með betri aðstöðu. Í húsinu er rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð og um 800 áhorfendur rúmast á svölum íþróttasalarins. Innanhúss er einnig stærsti klifurveggur landsins, góð teygju- og upphitunaraðstaða og fyrsta flokks styrktar- og þrekæfingaaðstaða ásamt tilheyrandi stoðrýmum. Í húsinu eru einnig óráðstafaðar hæðir sem vonandi nýtast undir heilsutengda starfsemi í framtíðinni. Má með sanni segja að húsið nýtist til fjölbreyttrar íþrótta- og tómstundaiðkunar fyrir fólk á öllum aldri.

En hvaðan kemur nafnið Miðgarður?

Garðabær efndi haustið 2021 til nafnasamkeppni um nafn á nýja fjölnota íþróttahúsinu í Garðabæ sem var öllum opin og fjölmargir íbúar tóku þátt og sendu inn tillögur að nafni. Nafn hússins, Miðgarður, var svo tilkynnt formlega í byrjun þessa árs. Samkvæmt goðafræðinni er Miðgarður miðja heimsins og sá staður þar sem mannfólkið býr. Það rímar vel við hugmyndir um fjölnota íþróttahúsið þar sem vonast er eftir lífi og fjöri á degi hverjum ásamt því að þar verður rými fyrir fjölbreytt viðfangsefni.

Laugardaginn 30. apríl kl. 13-16 verður opnunarhátíð Miðgarðs, fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri í Garðabæ.

Höfundur er bæjarstjóri í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×