Skoðun

Það er ekki gott að búa í Kópa­vogi – fyrir aldraða

Kristín Sævarsdóttir skrifar

Í árslok 2020 voru íbúar í Kópavogi eldri en 67 ára 5.166 og fjölgar þeim hlutfallslega á hverju ári. Hlutfall aldraðra er 13,5% af heildarfjölda bæjarbúa. Samt er varla minnst á aldrað fólk í stefnu Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, nema að þeir eigi að fá að velja hvort þeir vilji búa lengur heima og að það þurfi að samþætta þjónustu til þeirra.

Í Kópavogi í valdatíð Sjálfstæðisflokksins hefur skipulagsmálum verið þannig háttað að duglegir verktakar sjá tækifæri og koma með tillögur um uppbyggingu íbúðarhverfa og lati meirihlutinn (Sjálfstæðisflokkurinn flest undanfarin 30 ár) gerir það að sinni stefnu, blæs í lúðra og byggir dýrar, stórar íbúðir þangað sem flykkjast fólk yfir miðjum aldri sem kemur sér fyrir og árin líða.

Hvað svo?

Hlutfall eldri borgara er nú hærra í Kópavogi en annars staðar og ljóst að það endurspeglar áherslur í húsnæðismálum undanfarin 20 ár. Kópavogsbúum yfir níræðu hefur fjölgað um 62% undanfarin fimm ár og aldrað fólk þarf gjarnan aukna þjónustu heim eða hreinlega getur ekki búið heima og þarf að komast á hjúkrunarheimili. Öll þekkjum við stöðuna á hjúkrunarheimilunum. Þeim rýmum hefur ekkert fjölgað undanfarin 12 ár. 120 hjúkrunarrými eru í bænum og fimm hvíldarrými. Um 75 Kópavogsbúar eru á biðlista eftir hjúkrunarrými. Margir þeirra lifa biðina ekki af! Þar er við ríkisvaldið að sakast, svo við höldum því til haga.

Um 140 einstaklingar sækja dagsvöl fyrir aldraða í Kópavogi en um 100 manns eru á biðlista. Dagdvöl er mikilvæg mörgum öldruðum, ekki síst þeim sem búa einir og eru heilsuveilir. Það eru mannréttindi að aldraðir fái að vera samvistum við jafningja og nái að rjúfa einangrun með því að sækja dagþjónustu á vegum sveitarfélagsins einhverja daga í viku. Lengi hefur staðið til að útbúa dagvistun í Gjábakka fyrir 20-25 aldraða sem ekki þurfa mjög mikla umönnun en enn bólar ekkert á nauðsynlegum framkvæmdum. Það er forgangsmál að boðið verði upp á fleiri dagvistunarpláss í Kópavogi.

Málastjóri fyrir aldraða

Aðgengi eldri borgara að upplýsingum og þjónustu í Kópavogi er of flókið. Það er erfitt fyrir aldraða og aðstandendur þeirra að vita hvert á að leita eftir nauðsynlegri þjónustu. Það er mikilvægt að heimahjúkrun og heimaþjónusta verði samþætt og efld. Við í Samfylkingunni leggjum einnig áherslu á málastjóra fyrir aldraða Kópavogsbúa sem aldraðir og aðstandendur þeirra geti leitað til við úrlausn sinna mála.

Rannsóknir hafa sýnt að hægt er að auka verulega lífsgæði eldri borgara og koma í veg fyrir ýmsa lífsstílssjúkdóma með því að bjóða upp á skipulagða hreyfingu og líkamsþjálfun. Samfylkingin í Kópavogi vill áfram styðja við fjölbreytt tómstunda- og íþróttastarf meðal aldraðra. Sérstaklega mikilvægt er að ná til eldri borgara sem búa einir á heimilum sínum og styðja þau sem það vilja í hreyfingu og virkni í samfélagi aldraðra. Tryggjum öldruðum góða daga í Kópavogi.

Höfundur skipar 7. sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Kópavogi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×