Skoðun

Hvað vilja borgar­búar?

Sigríður Svavarsdóttir skrifar
  • Vilja þeir óbreytt skipulag?
  • Vilja þeir fleiri þrengingar á götum borgarinnar? 
  • Vilja þeir fleiri umferðar- og gönguljós? 
  • Vilja þeir að flugvöllurinn fari? 
  • Vilja þeir fleiri leiðir út úr borginni? 
  • Vill fólk fá borgarlínu og stokk á Miklubraut og Sæbraut? 
  • Vill fólk láta rífa niður byggð til að byggja nýja með tvöföldum kostnaði? 

Ábyrg framtíð hugsar til framtíðar. Við viljum flæðandi umferð í borginni með því að fækka gönguljósum sem auðvelt er að breyta yfir í göngubrýr eða undirgöng. 

Við ætlum að fækka umferðaljósum á t.d. á Bústaðavegi, setja í stað þeirra lítil hringtorg eða sjálfstýrandi ljós og „ná þannig flæði“. Víðar um borgina eru ljós sem bara tefja umferð og má leysa af hólmi með smáum hringtorgum til að liðka fyrir umferð. 

Við ætlum að stilla saman umferðaljósin á öllum hellstu stofnbrautum í borginni þannig bílar séu ekki alltaf stopp á rauðu. 

Við sjáum fyrir okkur mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og víðar þar sem hægt er með góðu móti að koma þeim fyrir. Við ætlum að fækka þrengingum og hraðahindrunum á götum borgarinnar á tímum umhverfismengunar. Við treystum fólki til að keyra á réttum hraða. 

Flugvöllurinn verður áfram þar sem hann er, hægt verður að auka umferð um hann m.a. með millilandaflugi til að bæta rekstur hans og lækka fluggjald út á landsbyggðina. Flugvöllurinn er lífæð landsbyggðarinnar og ekki síst þeirra sem veikjast eða slasast úti á landi. 

Við lækkum verð á nýbyggingum. Borgin á nóg af landi til að byggja á og það þarf ekki að rífa eldri byggð til að byggja nýtt. Við eigum nóg af byggingarlandi innan seilingar og byggjum þar. 

 Við ætlum að byggja upp gott og skilvirkt kerfi fyrir alla aldurshópa. Margir fatlaðir eru einangraðir heima, settir í daggæslu eða skóla á meðan það býðst og margur einangrast þar vegna fötlunar sinnar. Nú einangrast eldra fólk á heimilum sínum sem hefur misst heilsu á öllum aldri, auralítið og að mestu afskipt. Margur á ekkert heimili eða skjól vegna plássleysis því það virðist ekki vera gert ráð fyrir þeim í kerfinu. 

Biðlistar hjá greiningarkerfinu lengast og alltof fáir komast á rétta braut, oft vegna fjárhagslegra þrenginga í kerfunum. Grípum inn í fyrr og gerum fólki kleift að lifa hamingjusamt. 

Við viljum hreina borg og vel mokaða. 

Höfundur skipar 6. sætið í framboði fyrir Ábyrga framtíð í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×