Skoðun

Náðir þú að pakka?

Stella Samúelsdóttir skrifar

UN Women á Íslandi hrindir af stað neyðarsöfnuninni „Náðir þú pakka?“ fyrir konur í neyð og á flótta og biðlar til almennings að senda senda sms-ið KONUR í 1900 (1.900kr.) og veita konum og stúlkum á flótta lífsbjargandi aðstoð.

Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum og í dag, en fleiri en 80 milljónir manns hafa flúið heimili sín. Vegna stríðsins í Úkraínu hafa 8 milljónir flúið heimili sín, þar af eru 90% konur og börn. Þegar fólk flýr heimili sín, sama hvort það er vegna stríðsátaka, náttúruhamfara eða ofsókna, gefst sjaldan tími til að pakka, hvað þá að hugsa fyrir nauðsynjum. Á sama tíma er sjaldan hugað að sértækum þörfum kvenna og stúlkna og er átakinu Náðir þú að pakka? ætlað að upplýsa almenning um stöðu kvenna og stúlkna á flótta, mikilvægi þess að tekið sé mið af sértækum þörfum þeirra þegar neyðaraðstoð er veitt og hversu mikilvægt það er fyrir heilsu og líf kvenna á flótta að hafa aðgang að hreinlætisvörum, sálfræðiaðstoð, upplýsingum um réttindi sín, fjárhagsaðstoð og heilbrigðisþjónustu.

Konur greiða fyrir nauðsynjar með líkama sínum

Stríðsátök hafa ólík áhrif á líf fólks eftir stöðu þeirra og kyni. Á meðan karlmenn eru líklegri til að deyja í átökum þá eru konur og stúlkur líklegri til að verða fyrir kynbundnu ofbeldi, nauðgunum, mansali, nauðungarvinnu og búa við viðvarandi skort þegar stríðsátök geisa. Nú þegar eru farnar að berast fréttir af því að konur og börn á flótta frá Úkraínu hverfi í ringulreiðinni sem ríkir á lestastöðvum og móttökustöðum. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hefur það færst í aukana að konur á átakasvæðum og flótta séu þvingaðar til að „greiða“ fyrir húsaskjól, mat og vatn með líkama sínum. Nú þegar eru til rannsóknar 75 mál þar sem grunur liggur á að markvisst sé verið að beita kynferðisofbeldi sem stríðsvopni í Úkraínu.

UN Women beitir sér af alefli fyrir því að raddir kvenna heyrist og að aðstæður séu viðunandi fyrir konur og börn þeirra á flótta. Tryggja verður öryggi þeirra og koma þannig í veg fyrir að einstaklingar og skipulagði hópar nýti sér neyð kvenna og stúlkna. Neyð kvenna og stúlkna er víða um þessar mundir, ekki bara í Úkraínu, heldur líka í Afganistan, Eþópíu, Jemen og Sýrlandi.

Þú getur lagt þitt af mörkum

Nú þegar flest okkar eru farin að hugsa til sumarsins og hlakka til ferðalaga og frábærra stunda með fjölskyldum og vinum sem við eigum svo sannarlega skilið eftir undanfarin COVID ár, verðum við á sama tíma að hugsa um þau sem hvorki hafa tök á að pakka í ferðatösku né velja sinn áfangastað. Við getum öll gert eitthvað og með því að senda senda sms-ið KONUR í 1900 (1.900 kr.) getur þú lagt þitt af mörkum og þannig veitt konum og stúlkum á flótta lífsbjargandi aðstoð.

Höfundur er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×