Skoðun

Borgarfulltrúi einmanaleikans

Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Við verðum öll einmanna stundum og flestir hafa fengið smjörþefin af því núna undanfarið í heimsfaraldrinum hversu erfitt það getur verið að upplifa félagslega einangrun og einmanaleika. Mjög margir foreldrar hafa verið að takast á við aukin kvíða og þunglyndi unglinga sem fóru illa á því tímabili án þess að hafa félagslífið sem mikil þörf er á á þeim mótunar árum. Þeir sem eiga foreldra eða ættingja sem eru á hjúkrunar- eða dvalaheimili og voru þar innilokaðir eða eiga ættingja sem eru eldri og viðkvæmari gátu vart sofið fyrir áhyggjum af þeim. Eftir að hafa verið innilokaðir, vegna heimsfaraldurs ,eru margir sem áður voru félagslega sterkir enn að fóta sig í að byggja upp félagsleg tengsl á ný. Heilsufarsleg áhrif einmanaleika eru mikil.

Í gegnum tíðina hafa fræðimenn og aðrir reynt að sýna fram á alvarleika einmanaleika og félagslegrar einangrunar. Við erum hjarðdýr sem þurfum á hvert öðru að halda og andlegir kvillar ná fljótt fótfestu ef við upplifum okkur ein, þá er fokið í flest skjól.

Árið 2018 stofnuðu Bretar nýja ráðherrastöðu, ráðherra einmanaleikans og Japanir hafa fylgt í fótspor þeirra. Hlutverk ráðherra á þessu sviði er að draga úr einmanaleika og félagslegri einangrun landsbúa með því að greina áhættuþætti og innleiða úrræði. Þeir eru einnig ábyrgir fyrir að skipuleggja og stuðla að afþreyingu sem dregur einmanaleika og verndar vina- og fjölskyldusambönd.

Framsókn vill greina áhættuþætti einmanaleika í hverfum borgarinnar og allri starfsemi Reykjavíkurborgar. Við þurfum að innleiða úrræði og takast á við þennan heimsfaraldur nútímans saman þannig að þeir hópar sem eru viðkvæmastir fái stuðning og upplifi sig vera hluti af samfélagi borgarinnar. Við reynum saman að draga úr úr kvíða og þunglyndi og bregðast við nú á öld einmanaleika. Geðheilbrigði þarf að fá bæði athygli og stuðning sem sjálfsagður hluti af lýðheilbrigði almennt þess vegna þarf hugsanlega fulltrúa einmanaleikans í Reykjavíkurborg.

Höfundur skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×